Glamour

Gigi Hadid nýtt andlit Topshop

Ritstjórn skrifar
Bandaríska fyrirsætan Gigi Hadid hefur svo sannarlega skotist hratt upp á stjörnuhimininn undanfarið.

En hin tvítuga Hadid hefur nú bæst við Topshop fjölskylduna þar sem hún tilkynnt var í vikunni að hún verði andlit haustlínu merkisins í ár.

Hún tekur við keflinu af vinkonu sinni Cara Delevingne, sem hefur setið fyrir hjá Topshop undanfarin ár. Hún hefur nú lagt módelferilinn á hilluna í bili, og snúið sér að leiklistinni.

Af myndunum að dæma lýtur haustlínan vel út og verður spennandi að sjá þegar hún mætir í verslanir.







Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!

Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.



×