Glamour

Skreyttu þig með töskum

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Á tískuvikunni í París mátti greina ákveðið töskutrend meðal gesta - litríkar og skemmtilegar töskur í hinum ýmsu stærðum sem svo sannarlega lífguðu upp á klæðaburðinn. 

Töskurnar voru jafn ólíkar og þær voru margar, með skemmtilegum áletrunum eða hreinlega líktu eftir mjólkurfernum, pítsukössum og tyggjópakkningu. 

Töskur eru, og hafa alltaf verið, sannkallaður punkturinn yfir i-ið þegar kemur að klæðnað og þessar sem má sjá hér að neðan gera það svo sannarlega. Skemmtilegt trend. 



Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!

Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.



×