Innlent

Fækkuðu konum í fjármálageiranum á lista yfir 100 áhrifamestu konur landsins

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Vigdís Finnbogadóttir trónir á toppi listans.
Vigdís Finnbogadóttir trónir á toppi listans. Vísir
Tímaritið Frjáls verslun kom út í dag og fer til áskrifenda eftir helgi. Blaðið er helgað konum þetta sinnið sem er einkar viðeigandi þar sem konur fögnuðu 100 ára kosningaafmæli í síðasta mánuði eins og kunnugt er.

Í tölublaðinu er birtur listi yfir hundrað áhrifamestu konur landsins árið 2015. Þar er efst á blaði Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti lýðveldisins, en í  blaðinu er einnig yfirgripsmikið viðtal við Vigdísi.

„Listinn er með nokkuð breyttu sniði frá í fyrra vegna ábendinga þar um. Horft er meira til atvinnugreinaog einstakra sviða en áður – og ekki síst til sterkra fyrirmynda þegar kemur að velgengni,“ segir í blaðinu.

Konum í fjármálageiranum var vísvitandi fækkað lítillega þar sem undanfarin ár hefur komið fram gagnrýni á vægi þeirra á listanum. Þær konur sem gegna stöðu ráðuneytisstjóra koma aftur inn á listann en þær voru fyrir utan hann í fyrra. Þá er áhrifakonum innan sveitarstjórna og í stjórnmálum gert hærra undir höfði en áður. Þá fer sú kona sem gegnir embætti hæstaréttardómara inn á listann í krafti fyrirmyndar og virðingar.“

Aðrar konur á listanum eru til dæmis Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, Kristín Eysteinsdóttir, Borgarleikhússtjóri, Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, Yrsa Sigurðardóttir, glæpasagnahöfundur og Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×