Íslenski boltinn

Jóhannes snýr aftur á hliðarlínuna með ÍBV gegn ÍA

Jóhannes Harðarson mun stýra ÍBV gegn uppeldisfélagi sínu í dag.
Jóhannes Harðarson mun stýra ÍBV gegn uppeldisfélagi sínu í dag. vísir/vilhelm
Þau gleðitíðindi bárust frá Vestmannaeyjum fyrr í dag að Jóhannes Harðarson, þjálfari liðsins, snýr af til leiks í dag og verður á hliðarlínunni þegar ÍBV fer í gamla heimabæ Jóhannesar og heimsækir ÍA á Akranesi.

Jóhannes hefur ekki haft kost á því að stýra Eyjaliðinu í síðustu leikjum sökum veikinda í fjölskyldunni. Jóhannes kom hins vegar til landsins í gær og er klár í slaginn gegn uppeldisfélagi sínu.

Eyjamönnum hefur gengið ágætlega að undanförnu í fjarveru Jóhannesar en leikurinn í dag er gríðarlega þýðingamikill fyrir bæði lið, sem berjast í neðri hluta deildarinnar. ÍA er í 10. sæti með 9 stig en ÍBV er í 11. sæti með 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×