Glamour

Í samfesting eftir Sólveigu á Wimbledon

Ritstjórn skrifar
Sienna Miller
Sienna Miller Glamour/Getty
Leikkonan Sienna Miller stal senunni á Wimbledon-mótinu um helgina er hún klæddist hvítum samfesting frá fatamerki Sólveigar Káradóttur, Galvan London. 

Miller horfði á tennismótið fræga og sat í áhorfendastúkunni ásamt umboðsmanninum Ari Emanuel og virtist skemmta sér hið besta með sólgleraugu og rauðan varalit. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Miller sést í fatnaði frá merkinu en leikkonan er aðdáandi Galvan London, sem er á mikilli uppleið þessa stundina í tískuheiminum og voru Sólveig og félagar meðal annars í viðtali við Vogue um daginn. 



Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!

Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.



×