Glamour

Gabriel Day-Lewis er ný tískustjarna

Ritstjórn skrifar
Gabriel Day-Lewis
Gabriel Day-Lewis Glamour/Getty
Orðatiltækið sjaldan fellur eplið langt frá eikinni á vel við hér en nýjasta stjarnan í tískuheiminum er ungi herramaðurinn Gabriel Day-Lewis, 20 ára fyrirsæta og upprennandi tónlistarmaður sem tók tískuvikurnar með trompi þetta sumarið. Og já, hann er sonur Óskarsverðlaunahafans Daniel Day-Lewis.  

Tískuritið Elle hefur nefnt hann karlkyns útgáfu af ofurfyrirsætunni Cöru Delevingne, bæði út af áberandi augabrúnum en einnig vegna þess að Gabriel er af þessari nýju kynslóð fyrirsætna sem nota samfélagsmiðlana óspart til að koma sér á framfæri og skapa frægð. 

Við eigum alveg pottþétt eftir sjá meira af Gabriel, bæði í tískusenunni sem og í tónlistarheiminum en smáskífa frá kappanum er væntanleg og þá er ekki amalegt að hafa þá Karl Lagerfeld og Marc Jacobs í klappliðinu. 

Á sýningu Chanel fyrir viku síðan þar sem hann settist við spilaborðið ásamt Julianne Moore og Vanessu Paradis. 

 
With the King

A photo posted by Gabriel-Kane (@gabrieldaylewis) on Jul 13, 2015 at 8:49pm PDT

 
Enterprise

A photo posted by Gabriel-Kane (@gabrieldaylewis) on Jul 13, 2015 at 9:02am PDT

 
Back to brown for work... On set. Lots of good stuff coming soon. Get ready for the music! #TrailerLife #NoFilter

A photo posted by Gabriel-Kane (@gabrieldaylewis) on Jul 9, 2015 at 10:27am PDT

 
Backstage.

A photo posted by Gabriel-Kane (@gabrieldaylewis) on Jul 7, 2015 at 3:10am PDT

Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!

Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.



×