Glamour

Feta í fótspor mömmu

Ritstjórn skrifar
Börn ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford feta í fótspor móður sinnar og sitja fyrir í nýjasta hefti CR Fashionbook, sem Carine Roitfeld fyrrum ritstjóri franska Vogue gefur út. 

Systkinin, Kaia Gerber 13 ára og Presley Gerber 16 ára, eru bæði komin á samning hjá IMG Models umboðsskrifstofunni og hefur Kaia nú þegar setið fyrir hjá Steven Meisel fyrir ítalska Vogue.

Á skrá hjá IMG Models eru meðal annars ofurfyrirsæturnar Joan Smalls, Karlie Kloss og Rosie Huntington Whiteley. 

Það verður spennandi að fylgjast með þeim systkinum og sjá hvort þau verði jafn vinsæl og móðir þeirra. 

Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!

Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.





 
From CR Fashion Book Issue 7: @kaiagerber following in her mother's footsteps. Photo by @bruce_weber.

A photo posted by CR Fashion Book (@crfashionbook) on Jul 13, 2015 at 8:16am PDT



×