
Bottas: Erfitt að vinna titla með Williams-liðinu

Williams er sennilega þriðja hraðasta liðið í Formúlu 1 um þessar mundir á eftir Mercedes og svo Ferrari. Bottas segir að staða liðsins núna og það litla fjármagn sem liðið hefur miðað við Mercedes og Ferrari gera titilbaráttu erfiða.
Williams hefur vissulega getað skákað Ferrari á vissri tegund brauta í ár, hraðar beygjur og beinir kaflar henta Williams bílnum betur er Ferrari bílnum. Mercedes er þó enn talsvert á undan og þar hefst vandinn að mati finnska ökumannsins.
„Það eru lið til staðar með töluvert meiri peningna en við og það er ekki leyndarmál. Mercedes drottnar og Ferrari er aðeins á undan okkur í augnablikinu svo róðurinn er erfiður, en ég ætla ekki að segja að þetta sé ómögulegt,“ sagði Bottas.
Bottas hefur gefið í skyn að hann sé ekki bundinn hjá Williams liðinu ef rétt tækifæri koma til hans. Hann segist hins vegar vera reiðubúinn að leggja allt í sölurnar til að aðstoða Williams.
„Í Formúlu 1 geta hlutirnir breyst hratt og ef það koma upp tækifæri þá þarf maður stundum að nýta þau, en aðal atriðið er að vera á réttum stað á réttum tíma,“ bætti Bottas við.
„Williams hefur oft unnið titla, ég hef alltaf sagt að það sé engin ástæða til að efast um að það gerist aftur, staðreyndin er þó sú að í augnablikinu er það afar erfitt,“ sagði Bottas.
„Fyrir mér skiptir engu hvort ég er einhversstaðar í þrjú ár, tíu ár eða eitt át, ég mun alltaf gera allt sem ég get til að hjálpa liðinu að ná sem bestum úrslitum,“ sagði Bottas að lokum.
Tengdar fréttir

Ricciardo útilokar ekki að fara til Ferrari
Hver ekur fyrir Ferrari á næsta ári? Sú spurning brennur á allra vörum. Nú hefur Daniel Ricciardo viðurkennt áhuga á sæti Kimi Raikkonen.

Lewis Hamilton vann á heimavelli
Lewis Hamilton á Mercedes tók þjónustuhlé á ögurstundu og tryggði sér 25 stig. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari tók þjónustuhlé á sama tíma og Hamilton og varð þriðji.

Bílskúrinn: Brjálæði í Bretlandi
Lewis Hamilton á Mercedes kom að lokum fyrstur í mark. Atburðarásin sem leiddi til þess var ótrúleg, þrátt fyrir að heimamaðurinn hafi verið á ráspól.

Bottas: Við höfum yfirhöndina í baráttunni við Ferrari
Lewis Hamilton nældi sér í ráspól á heimavelli á Silverstone brautinni í dag. Sinn áttunda á tímabilinu. Einungis Ayrton Senna og Michael Schumacher hafa oftar náð ráspól. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Bílskúrinn: Allt markvert frá Austurríki
Nico Rosberg bítur frá sér, nælir í 25 stig og gerir það með glans. Kimi Raikkonen verður undir Fernando Alonso, Williams stelur verðlaunum af Ferrari.

Smedley: Við bönnuðum þeim ekki að keppa
Lewis Hamilton vann sinn annan breska kappakstur í röð og þriðja á ferlinum. Hann tók þjónustuhlé á hárréttu augnabliki. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Arrivabene: Bottas meðal margra sem hafa haft samband
Liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segir marga ökumenn hafa haft samband við sig með það fyrir augum að aka fyrir Ferrari í náinni framtíð.