Glamour

Metallic Stan Smith fyrir næsta sumar

Ritstjórn skrifar
Fatahönnuðurinn Raf Simmons mun hanna aðra skólínu í samstarfi við Adidas, en sú sem hann gerði fyrir sumarið 2015 sló rækilega í gegn.





Fyrir næsta sumar hefur hann meðal annars endurgert Stan Smith skóna og sett á þá þrjá franska rennilása sem mynda Adidas rendurnar frægu. Þeir munu koma í grænu og svörtu, báðir með hvítum röndum og bláu með rauðum röndum. Verður þessi týpa fáanleg í febrúar á næsta ári.

Að auki mun sumarlínan innihalda Stan Smith skó í nýjum litum eins og dökkbláu, ferskju og lime, ásamt silfur og brons metallic lit, sem eiga líklegast eftir að rjúka út þegar þeir koma á makað næsta sumar.



×