Glamour

Hátíska í götutísku

Ritstjórn skrifar
Auglýsingaherferðin fyrir haustlínu Miu Miu hefur vakið mikla athygli enda frekar óvenjuleg.

Einn þekktasti ljósmyndari heims, Steven Meisel, tók myndirnar en í stað þess að notast við stúdíó voru myndirnar teknar úti á götum New York borgar. 

Innblástur af myndunum var sóttur til fimmta áratugarins og í stað þess að birta kreditlista fengu myndirnar hver sitt nafn.

Miu Miu er þó ekki fyrsta hátístkuhúsið sem tekur auglýsingar sínar úti, en auglýsingaherferð fyrir Gucci var mynduð á götum Los Angeles.



En sjón er sögu ríkari og má sjá hluta af myndunum hér fyrir neðan, sem eru hver annarri glæsilegri.

Fylgstu með Glamour á Facebook og Instagram



×