Farid Zato opnaði markareikninginn sinn hjá Kára Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2015 20:15 Farid Zato í KR-búningnum. Vísir/Daníel
Tógómaðurinn Farid Zato er farinn að spila fótbolta á ný en hann hefur spilað tvo síðustu leiki með Kára í 3. deildinni og það er óhætt að segja að Káraliðið byrji vel með hann innanborðs. Farid Zato opnaði markareikning sinn hjá Kára í 3-1 sigri á Reyni úr Sandgerði í gær en markið hans kom í uppbótartíma. Þetta var annar leikur Farid Zato með Kára en liðið vann 4-0 sigur á Berserkjum í fyrsta leiknum hans með liðinu sem var fyrir rúmri viku síðan. Farid Zato hefur reyndar fengið gult spjald í báðum leikjunum en leikurinn í gær var sá fyrsti þar sem hann spilar allar 90 mínúturnar. Markið sem hann skoraði á móti Reyni var hans fyrsta í deildarkeppninni á Íslandi síðan að hann skoraði fyrir Víking úr Ólafsvík í 1-1 jafntefli á móti ÍBV í Eyjum 18. ágúst 2013. Kári var búið að tapa tveimur leikjum í röð áður en Sigurður Jónsson, þjálfari Kára, setti Farid Zato í byrjunarliðið í fyrsta sinn í sumar. Farid Zato er að koma til baka eftir erfið meiðsli á fæti en hann gerði starfslokasamning við KR í byrjun maí eftir að hafa komið óleikfær heim frá Tógó. Farid Zato er á sínu fimmta sumri á Íslandi og hefur nú spilað í fjórum efstu deildunum. Hann spilaði með KR í Pepsi-deildinni í fyrrasumar og með Víkingi úr Ólafsvík í Pepsi-deildinni 2013. Þá spilaði hann með HK í 2. deildinni 2012 og í 1. deildinni 2011.
Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira