Kolbeinn: Við áttum skilið að vinna Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. júní 2015 00:00 Vísir/Ernir „
Þetta var algjörlega ótrúlegur sigur," segir Kolbeinn Sigþórsson sem skoraði sigurmark leiksins gegn Tékkum í kvöld. „Að sjá hvernig við komum til baka eftir að hafa lent undir var frábært. Við létum markið ekki á okkur fá og vorum enn þá betri eftir að hafa fengið markið á okkur. Við áttum skilið að skora og vinna." Kolbeinn var á því að íslenska liðið hefði verið sterkara liðið á flestum sviðum í kvöld. „Mér fannst þeir vera hræddir við líkamlega styrkinn hjá okkur. Maður fann að þeir báru virðingu fyrir okkur. Við vildum þetta meira og börðumst hvern einasta bolta. Þetta Tékkalið er drullugott en við náðum að loka frábærlega á þá. „Markið þeirra kveikti enn frekar í okkur og það sýnir eina ferðina enn karakterinn í okkar liði. Það er ekkert grín að koma til baka á móti svona sterku liði." Kolbeinn var afar yfirvegaður er hann skoraði markið sem innsiglaði stigin þrjú. „Ég beið aðeins með að skjóta og lét hann koma á móti mér. Það var frábært fyrir mig að skora enda langt síðan ég skoraði í landsleik. Það er frábært að við séum komnir í toppsætið og við viljum halda því. Við erum ekki komnir á EM samt. Ekki fyrr en við erum komnir þangað," sagði Kolbeinn og glotti.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Enski boltinn Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn „Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ Handbolti Kahn gæti eignast fallið stórveldi Fótbolti Leik lokið: KR - Tindastóll 95-116 | Jólamaturinn fór betur í gestina Körfubolti Friðrik um viðskilnaðinn við Keflavík: „Ákvað að standa með sjálfum mér“ Körfubolti Brann einnig rætt við Frey Fótbolti Munar meira en fimmtíu milljónum á tapi og sigri í kvöld Sport Salah henti Suarez úr toppsætinu Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Í beinni: Valencia - Real Madrid | Hvernig byrja meistararnir nýtt ár? Brazell ráðinn til Vals Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Brann einnig rætt við Frey Salah henti Suarez úr toppsætinu Rashford ekki með til Liverpool og sagður lasinn Kahn gæti eignast fallið stórveldi Bjargaði æskufélaginu sínu Slot segir Man. Utd mun betra en taflan sýni „Það er betra að sakna á þennan hátt“ Segir Rashford hafa hafnað þremur tilboðum frá Sádi-Arabíu Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Fékk stóra sekt fyrir að faðma konu Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Íslandsmeistarinn Telma á leið til Skotlands Ancelotti vildi ekki tjá sig um Trent Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum Segir The Sun flytja falsfréttir: „Þetta er að verða algjört rugl“ Hafa aldrei tapað þegar Jesus skorar Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fyrrum landsliðsþjálfarinn aðlaður af konungi Mark ársins strax á fyrsta degi? „Ekki auðvelt að spila fyrir stórt félag eins og Arsenal“ Hákon Rafn á bekknum þegar Skytturnar skutust í annað sætið Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði stigum Fjölmargir leikmenn orðaðir við Arsenal Sjá meira