Glamour

Krónprinsessan klæddist H&M

Ritstjórn skrifar
Victoria og Daniel, eiginmaður hennar.
Victoria og Daniel, eiginmaður hennar. Getty
Victoria krónprinsessa Svía, klæddist kjól frá sænska fatarisanum H&M í brúðkaupi bróður síns, Carl Philip, í Stokkhólmi um helgina.

Kjóllinn, sem kemur úr Concious línu H&M, er gerður úr lífrænum efnum, en Concious línan stuðlar að endurnýtingu fatnaðar og sjálfbærni.

Kjóllinn er hannaður út frá pilsi úr Concious línunni 2015, en hann var drapplitaður með blágrænu munstri. 

Fylgstu með Glamour Ísland á Facebook og Instagram







PIlsið sem kjóllinn er hannaður útfrá.
Victoria var stórglæsileg í kjólnum úr H&MGetty


×