Glamour

Fágað fyrir herrana frá Burberry

Ritstjórn skrifar
Flott frá Burberry.
Flott frá Burberry. Glamour/Getty
Erum við ekki öll byrjuð að spá í hverju við ætlum að klæðast næsta sumar?

Það er allavega breska tískuhúsið Burberry sem blés til garðveislu rétt fyrir utan miðborg London í gær til að sýna herratískuna fyrir sumarið 2016. Öllu var tjaldað til enda tískuhúsið ekki þekkt fyrir annað en fágun og glæsileika. 

Lifandi tónlist var á sviðinu og umgjörðin glæsileg. Af sýningunni að dæma verða klútar mjög mikilvægur fylgihlutur fyrir herrana eftir ár.

Stjörnurnar létu sig ekki vanta eins og Suki Waterhouse sem er eitt af andlitum Burberry, Samuel L. Jackson og stjörnuljósmyndarinn Mario Testino. 

Fylgstu með Glamour á Facebook og Instagram.


Blár klútur og svartur jakki.
Svart og hvítt.
Frakki í kamellit.
Lifandi tónlist á sýningunni.
Clara Paget í fallegum ljósgrænum kjól.
Suki Waterhouse og Mario Testino.
Samuel L. Jackson í bleikum jakka.
Fyrirsætan David Candy.


×