Garðar óttast slæm meiðsli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. júní 2015 12:33 Vísir/Valli
Sóknarmaðurinn Garðar Jóhannsson þurfti að fara meiddur af velli í leik Stjörnunnar og Leiknis í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar í gær. Stjarnan vann leikinn í vítaspyrnukeppni en þurfti að leika manni færri í framlengingunni þar sem að Garðar meiddist í lok venjulegs leiktíma. Rúnar Páll Sigmundsson var þá búinn að nota allar þrjár skiptingar Stjörnumanna. „Ég datt bara illa á mjöðmina og fann smell í náranum. Ég veit meira eftir myndatökuna sem ég er nú að bíða eftir,“ sagði Garðar í samtali við Vísi í dag en hann var þá í biðstofunni á leið í læknisskoðun. „Ég óttast að þetta sé eitthvað slæmt en ég verð bara að vona það besta,“ sagði Garðar og bætti því við að hann hefði átt að fá víti í gær því það hafi verið brotið á honum í umræddu atviki. „Ég var togaður niður og við það datt ég svona illa. En ég er ekkert að spá í því í dag,“ sagði hann. Garðar lá nokkuð lengi á sjúkrabörunum en var þó staðinn upp í leikslok. „Sjúkraþjálfarinn vildi ekki leyfa mér að standa upp strax þar sem hann óttaðist að mjaðmakúlan hefði farið úr lið. Ég gat heldur ekki hreyft löppina fyrst um sinn.“ Garðar kom inn á sem varamaður um miðjan síðari hálfleik í gær og var nálægt því að skora skömmu síðar.
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Leiknir 7-6 | Stjarnan vann í vítaspyrnukeppni Hörður Árnason var hetju Stjörnumanna í vítaspyrnukeppninni gegn Leikni á Samsung-vellinum. 3. júní 2015 15:23 Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Leiknir 7-6 | Stjarnan vann í vítaspyrnukeppni Hörður Árnason var hetju Stjörnumanna í vítaspyrnukeppninni gegn Leikni á Samsung-vellinum. 3. júní 2015 15:23