Stewart: Rosberg mun njóta góðs af pásunni Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 4. maí 2015 17:00 Jackie Stewart hefur fulla trú á Hamilton en telur að Rosberg geti veitt honum keppni eftir pásuna. Vísir/Getty
Jackie Stewart telur að þriggja vikna hléið sem klárast næstu helgi geri niðurlútum Nico Rosberg mjög gott. Rosberg tók baráttuna innan Mercedes liðsins alla leið í síðustu keppni tímabilsins í fyrra en hefur ekki náð sér á strik í ár. Liðsfélagi hans, ríkjandi heimsmeistari Lewis Hamilton hefur haft betur í öllum tímatökum og keppnum tímabilsins hingað til. Rosberg er 27 stigum á eftir Hamilton sem leiðir heimsmeistarakeppni ökumanna. Á sama tíma í fyrra var Rosberg með fjögurra stiga forskot. „Ég held að hann sé svekktur yfir aðstæðunum sem uppi eru og það er erfitt fyrir hann að sjá Lewis aka svona stöðugt betur en hann,“ sagði þrefaldi heimsmeistarinn, Stewart um Rosberg. „Þetta gæti snúist við. Nico er afburða ökumaður og getur náð réttum kili aftur. Eftir erfiðar keppnir tvær helgar í röð er líklegt að hann njóti góðs af pásunni. Hann mun hafa tíma til að ná áttum,“ sagði Stewart. Stewart telur Hamilton aka af auknum þroska í ár og að hann sé betri en nokkru sinni. „Hann er ekki eins mikið upp og niður. Hann er á betri stað, hann er mjög einbeittur að akstrinum. Ég held í hreinskilni sagt að hann geti ekki ekið mikið betur en hann er að gera þessi misserin,“ bætti Stewart við.
Formúla Tengdar fréttir Lotus kemur með stórar uppfærslur til Spánar Lotus liðið í Formúlu 1 ætlar að mæta til keppni á Spáni næstu helgi með miklar uppfærslur á bílum sínum. 3. maí 2015 09:00 Sonur Schumacher vann sinn fyrsta kappakstur Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Það á svo sannarlega vel við í tilviki Michael Schumacher og sonar hans, Mick. 27. apríl 2015 16:45 Moss: Rosberg vinnur Hamilton aldrei Formúlu 1 goðsögnin Stirling Moss segir að Nico Rosberg eigi ekki möguleika á að vinna Lewis Hamilton í baráttunni um heimsmeistaratitil á meðan þeir eru í sama liði. 1. maí 2015 16:45 Bílskúrinn: Barátta í Barein Lewis Hamilton rétt náði að koma fyrstur í mark í spennandi keppni. Pastor Maldonado tókst ekki að klára og Valtteri Bottas varðist vel. 22. apríl 2015 14:30 Hakkinen: Ekki viss um hvort Ferrari ætti að halda Raikkonen Tvöfaldi heimsmeistarinn Mika Hakkinen segir Ferrari eiga erfiða ákvörðun fyrir höndum. Ferrari þarf að ákveða hvort það vill framlengja samning Kimi Raikkonen. 28. apríl 2015 16:00 Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Enski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Ungverski kappaksturinn myndaður af forseta Norris kom sér aftur á sigurbraut Endurkoma Formúlu 1 til Malasíu staðfest vegna stríðsátaka Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring Sjá meira
Lotus kemur með stórar uppfærslur til Spánar Lotus liðið í Formúlu 1 ætlar að mæta til keppni á Spáni næstu helgi með miklar uppfærslur á bílum sínum. 3. maí 2015 09:00
Sonur Schumacher vann sinn fyrsta kappakstur Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Það á svo sannarlega vel við í tilviki Michael Schumacher og sonar hans, Mick. 27. apríl 2015 16:45
Moss: Rosberg vinnur Hamilton aldrei Formúlu 1 goðsögnin Stirling Moss segir að Nico Rosberg eigi ekki möguleika á að vinna Lewis Hamilton í baráttunni um heimsmeistaratitil á meðan þeir eru í sama liði. 1. maí 2015 16:45
Bílskúrinn: Barátta í Barein Lewis Hamilton rétt náði að koma fyrstur í mark í spennandi keppni. Pastor Maldonado tókst ekki að klára og Valtteri Bottas varðist vel. 22. apríl 2015 14:30
Hakkinen: Ekki viss um hvort Ferrari ætti að halda Raikkonen Tvöfaldi heimsmeistarinn Mika Hakkinen segir Ferrari eiga erfiða ákvörðun fyrir höndum. Ferrari þarf að ákveða hvort það vill framlengja samning Kimi Raikkonen. 28. apríl 2015 16:00