Farið verður yfir allt þetta og fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Venesúela búinn í liði Lotus hefur ekki tekist að ljúka keppni á tímabilinu. Hann var saklaust fórnarlamb í fyrstu þremur keppnunum.
Keppnin um helgina var ekki hans besta. Maldonado gerði mistök þegar hann var að koma inn á þjónustusvæðið, já aftur, aðra helgina í röð. Mistökin í Barein voru afdrifarík. Hann kom hratt inn á þjónustusvæðið og læsti afturdekkjunum og drap á bílnum.
Pastor Maldonado er gjarnan kallaður „Crashtor,“ enda hefur hann unnið hart að því að skapa sér orðspor sem óöruggur ökumaður. Crashtor myndi útleggjast: Klesstor.
Líklega væri Lotus að leita að öruggari ökumanni ef Maldonado hefði ekki eins öflugan fjárhagslegan bakhjarl og hann gerir.

Kannski einn heppnasti maður helgarinnar, Daniel Ricciardo var einkar óheppinn í leiðinni. Renault vélin í Red Bull bíl Ástralans sprakk þegar 200 metrar voru eftir af keppninni. Hann komst yfir endamarkið og enginn tók fram úr honum.
„Það var flugeldasýning í gangi og vélin vildi taka þátt,“ sagði Christian Horner, keppnisstjóri Red Bull.
Hver ökumaður má nota fjórar vélar á tímabilinu áður en hann verður færður aftur um 10 sæti á ráslínu, sem gerist fyrst þegar fimmti vélarhluturinn er notaður.
Ricciardo mun nota fjórðu vélina í næstu keppni á Spáni sem er fimmta keppnin á tímabilinu af nítján.

Kimi Raikkonen á Ferrari var þriðji þegar örfáir hringir voru eftir. Hann komst fram úr Nico Rosberg á Mercedes þegar bremsurnar á bíl Þjóðverjans ofhitnuðu og hann missti af beygju.
Raikkonen hóf þá að elta Hamilton. Eftir nokkra hringi var greinilegt að bremsurnar á bíl Bretans voru líka farnar að dofna. Finninn gerði allt sem hann gat en hann endaði 3,3 sekúndum á eftir Hamilton.
„Við urðum uppiskroppa með hringi, við hefðum haft Lewis í lokinn,“ sagði Raikkonen eftir keppnina.

Alls eru fimm ökumenn stigalausir þegar fjórar keppnir eru búnar. Í tuttugasta sæti er „Klesstor“ Maldonado á Lotus sem hefur ekki enn lokið keppni á tímabilinu.
Manor ökumennirnir Will Stevens og Roberto Merhi eru svo þar fyrir ofan, þeir eiga hrós skilið fyrir góðan akstur um helgina. Áreiðanleiki bílsins og ökumanna liðsins er aðdáunarverður. Sérstaklega með tilliti til þess hve stuttan undirbúningstíma liðið hafði.
McLaren liðið er svo næst fyrir ofan, Jenson Button er númer 17 og Fernando Alonso númer 16 í heimsmeistarakeppni ökumanna. Button tók ekki þátt í keppninni um helgina, rafkerfið í bíl hans bilaði og liðið vildi ekki taka áhættuna á að senda hann til keppni. Button læddist út á flugvöll þegar keppnin var hálfnuð og flaug heim.
Alonso varð 11. og Andrea Stella, aðstoðarmaður Alonso lýsti því í talstöðinni sem frábæru framfaraskrefi. Það er erfitt tímabil framundan hjá McLaren. Ætli Alonso hafi getað ímyndað sér að vera í þessari stöðu þegar hann ákvað að fara frá Ferrari til McLaren? Nei sennilegast ekki.

Valtteri Bottas á Williams barðist síðustu hringina við fjórfalda heimsmeistarann Sebastian Vettel á Ferrari um fjórða sætið. Bottas varðist óaðfinnanlega og gerði engin mistök.
Hann er klárlega maður keppninnar. Það var virkilega gaman að fylgjast með baráttunni á milli Bottas og Vettel. Vettel gerði mistök og missti Bottas fram út sér. Vettel reyndi hvað hann gat en tókst ekki að komast fram úr.