Enginn hefur hlaupið Laugaveginn jafnhratt Rikka skrifar 24. apríl 2015 14:15
Elísabet Margeirsdóttir hitti á Þorberg Inga Jónsson sem æfir þessa dagana fyrir heimsmeistaramótið í utanvegahlaupum IAU World Trail Championship sem verður haldið 30. maí næstkomandi í Annecy í Frakklandi. Hlaupið er 85 kílómetra langt og samanlögð hækkun 5200 metrar. Þetta verður í fyrsta sinn sem Ísland sendir lið í þessa keppni en hann fer út ásamt langhlaupurunum Guðna Páli Pálssyni og Örvari Steingrímssyni. Þorbergur er mörgum kunnur fyrir afrek á hlaupabrautinni en enginn hefur hlaupið Laugavegshlaupið jafn hratt og hann. Við fylgdumst með einni langri æfingu hjá honum þar sem hann hljóp meðal annars upp og niður Hlíðarfjall. Hér má fylgjast með liðinu á Facebook Í innslaginu hittir hún einnig Brynju Hafsteinsdóttur, formann Skíðafélags Siglufjarðar en hún fræddi okkur aðeins um fjallaskíðamótið Super Troll Ski Race haldið í annað sinn á Tröllaskaga þann 2.maí. Það borgar sig að vera vel búinn og fékk Elísabet Stefán Geir Andrésson fjallaskíðakappa til að fara yfir nauðsynlegan búnað. Elísabet kíkti á fyrsta fjallahjólakeppni ársins eða svokölluðu ENDURO keppni. Það var keppt í áföngum á 16 km leið frá Helgafelli og að Vífilsstaðarvatni, mest niður í mót og reyndi gríðarlega á tækni á sumum köflum. Rúnar Theodórsson sigraði karlaflokkinn og María Ögn Guðmundsdóttir kvennaflokkinn.
Heilsa Heilsa video Tengdar fréttir Stefna á 85 kílómetra hlaup Elísabet Margeirsdóttir er með frábær innslög í Íslandi í dag þar sem fjallað er um hinar ýmsu útivistaríþróttir. Áhorfendur fá að kynnast fólki sem stundar þær af einskærri ástríðu en einnig þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin. 17. apríl 2015 11:00 Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist
Stefna á 85 kílómetra hlaup Elísabet Margeirsdóttir er með frábær innslög í Íslandi í dag þar sem fjallað er um hinar ýmsu útivistaríþróttir. Áhorfendur fá að kynnast fólki sem stundar þær af einskærri ástríðu en einnig þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin. 17. apríl 2015 11:00