Íslenski boltinn

Víkingur gerði út um vonir KA

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ívar í eldlínunni síðasta sumar.
Ívar í eldlínunni síðasta sumar. vísir/vilhelm
Víkingur gerði út um vonir KA að fara áfram í 8-liða úrslit Lengjubikarsins með 3-2 sigri norðan heiða.

KA komst 2-0 yfir með mörkum frá Elfari Árna Aðalsteinssyni, en annað markið var úr víti.

Rolf Toft minnkaði muninn, Agnar Darri Sverrisson jafnaði metin og Ívar Örn Jónson skoraði sigurmarkið undir blálokin.

Víkingur mætir FH í átta liða úrslitunum, Fylkir mætir Fjölni, Breiðablik mætir Val og ÍA mætir KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×