Glamour

Tískan á Coachella

Fjölbreytt og sumarlegt á Coachella.
Fjölbreytt og sumarlegt á Coachella.
Á meðan það kyngdi niður jólasnjó á höfuðborgarsvæðinu á Íslandi um helgina var sumarið svo sannarlega komið á Coachella-tónlistarhátíðinni í Los Angeles. 

Mörg hundruð þúsund manns voru samankomnir að hlusta á Drake, Madonnu, Lykke Li og FKA Twigs í sumarhitanum en það seldist upp á hátíðina í ár á tuttugu mínutum. Meðal gesta vpru fölmargar stjörnur, sem nýttu tækifæri og klæddu sig upp í sumarklæðani og sandölum. 

Rúskinn, síð pils með tveimur klaufum, nóg af fylgihlutum og hattar voru áberandi í götutískunni. 

Glamour skoðaði hvað bar hæst í tískunni á Coachella í ár. 

Systurnar Kendall og Kylie Jenner létu sig ekki vanta. Önnur í hnésíðum gallastuttbuxum og rúskinns-vesti en hin í hvítu frá toppi til táar. 

Leikkonan Kate Bosworth stígur sjaldan feilspor í klæðaburði - við erum sérstaklega hrifnar af stígvélunum hennar sem rokka þetta aðeins upp. 

Hippalegt hjá Gigi Hadid og Söruh Hyland. 

Katy Perry lét ekkert aftra sér í að klæðast síðkjól á tónlistarhátíðinni. 

Blátt og munstrað alla leið hjá Hilton systrum. 

Fyrirsætan Kendall Jenner lét ekki sjá sig í sömu fötunum dag eftir dag og hér er hún í síðu pilsi með tveimur klaufum við stuttan blúndutopp. 



×