Hellisheiði, Þrengslum og Sandskeiði lokað Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 22. febrúar 2015 16:01 vísir/gva
Búið er að loka Sandskeiði, Hellisheiði og Þrengslum. Þá er lokað fyrir alla umferð undir Eyjafjöllum að Vík. Ofsaveður er nú suðaustanlands og syðst með snjókomu eða skafrenningi og engu skyggni. Þó úrkomuminna sé í öðrum landshlutum er vindstyrkur þar nægur til að hreyfa lausan snjó sem fyrir er og mynda skafrenning sem tefur ferðalög eða jafnvel hamlar þeim. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Á morgun er útlit fyrir stífa norðanátt, en búist er við mun hægari vindi á þriðjudag.Uppfært 19.45: Sandskeiði og Þrengsli hafa verið opnuð á ný. Hellisheiði er enn lokuð og sömuleiðis er enn lokað er fyrir alla umferð undir Eyjafjöllum að Vík og frá Skaftafelli að Kvískerjum. Færð og aðstæður: Óveður er á Kjalarnesi og Hvalfirði. Snjóþekja og skafrenningur er á Reykjanesbraut og Suðurnesjum. Hálkublettir og stórhríð er á Suðurstrandarvegi frá Festarfjalli að Krísuvíkurafleggjara. Krísuvíkurvegur er ófær. Hálkublettir og skafrenningur er á Lyngdalsheiði og hálka og skafrenningur er á Mosfellsheiði. Hálkublettir eru á nokkrum köflum á Suðurlandi, einkum í uppsveitum. Hálka eða hálkublettir og skafrenningur er allvíða á Vesturlandi. Óveður hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiðinni. Snjóþekja er á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er víðast hálka eða snjóþekja og skafrenningur. Þungfært og skafrenningur er á Hálfdáni og Mikladal. Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Norðurlandi. Óveður er á Víkurskarði og snjóþekja. Óveður í austanverðum Eyjarfirðinum. Óveður er á Vatnsskarði og Gauksmýri með hálku og skafrenningi. Á Norðurlandi eystra og Austfjörðum er hálka á flestum vegum og eitthvað um hálkubletti. Þæfingsfærð er á Hólasandi og Vatnsskarði eystra. Þungfært og óveður er á Hófaskarði og Hálsum. Greiðfært er að mestu með suðausturströndinni en mikið hvassviðri. Óveður er nánast frá Hellu og austur í Öræfasveit. Ófært og Stórhríð á Reynisfjalli. Ófært og óveður við Freysnes og Kvísker.
Veður Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Sjá meira