Nuddaðu snípinn! sigga dögg skrifar 27. febrúar 2015 15:00 Vísir/Getty
Ég verð að játa að þolinmæði mín er á þrotum. Ef ég fæ enn einn tölvupóstinn sem fjallar um leggangafullnægingu eða hvernig hann getur látið, athugið LÁTIÐ í skipunartóni, hana fá það, þá gæti tölvan mín lent í ruslinu. Ekki misskilja mig, ég elska að fá frá þér lesandi góður spurningar í tengslum við kynlíf en mér finnst ég vera farin að endurtaka mig ískyggilega mikið og minna á gamlan vínyl. Þú lætur ekki aðra manneskju njóta kynlífs. Það er ekkert töfraorð eða sérstaklega taktfastur sláttur sem gerir það að verkum að önnur manneskja springur í frygðarstunum. Hún fær fullnægingu því hún sleppir sér. Hún er hönnuður sinnar eigin fullnægingar. Það er því sama hversu mikla tækni þú telur þig hafa lært, ef hún er ekki með heila og hjarta í kynlífinu þá getur þú allt eins sleppt þessum fimleikum þínum. Seinustu helgi sat ég með hóp af ungum konum sem hlógu að skilningi fyrrverandi bólfélaga á snípnum. Ein líkti snípnum við stóran rauðan hnapp sem viðkomandi hélt að þyrfti bara að ýta á einu sinni, líkt og um geimflaugarskot væri að ræða, og hún myndi engjast um af unaði. Stelpurnar rifnuðu af hlátri og skiptust á sögum af hversu lengi þær þyrftu að nudda snípinn, af hversu miklum ákafa og hversu vel þær þyrftu að kveikja fyrst á sér kynferðislega þarna uppi í heilanum. Í fræðslu í framhaldsskóla vatt einmitt strákur sér að mér og spurði hvort hann þyrfti í alvörunni alltaf að nudda þennan sníp þarna. Og bætti við, þarf að gera það lengi? Nú, eða ágæta daman sem finnst hún vera að missa af öllu góðu í kynlífi því hún getur ekki fengið fullnægingu nema með því að nudda snípinn. Hvaða ráð gæti ég gefið henni til að upplifa hina langþráðu leggangafullnægingu sem allar vinkonur hennar töluðu um af svo miklum ákafa. Mér fallast hendur. Þú berð ábyrgð á þinni eigin fullnægingu. Hún byrjar í hausnum á þér. Ef þú ert að taka úr uppþvottavélinni þá er erfitt að njóta sín í kynlífi nema þú sért með blæti fyrir heimilisþrifum. Ef þú ert með píku þá er snípurinn næmasti staðurinn á henni og var hannaður til þess eins að veita þér unað og fullnægingu. Það er hvorki skrýtið né flókið, svona virkar píkan bara. Þá er gott að muna að snípurinn bleytir sig ekki sjálfur og því er gott að bleyta hann fyrir örvun með sleipiefni eða bleytunni sem píkan framleiðir sjálf. Ekki nota munnvatn, það þornar svo fljótt. Ég biðla til ykkar allra þarna úti sem á einhverjum tímapunkti munu snerta píku, NUDDAÐU SNÍPINN! Ef viðkomandi segir að sér finnist svo gott að fá fingur inn í leggöng, hlustaðu þá á það. Spurðu hvað henni þykir gott og taktu við leiðbeiningum. Þá fyrst erum við að tala um kynlíf. Það er jú einn af tjáningarmátum fólks svo notaðu hann og gerðu það vel, þetta eru samræður en ekki einræða.
Heilsa Mest lesið Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum Lífið Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Lífið „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Lífið Svarar því hve mörg páskaegg þurfi að borða til að bæta á sig kílói Lífið Losnaði við alla fíkn á augabragði: „Því Guð er með skyndilausnir líka“ Áskorun Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp Litla hryllingsbúðin kveður á Akureyri Lífið Ný fjarlækningaþjónusta fyrir sykursýkissjúklinga á Selfossi Lífið samstarf „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp