Af hverju fæ ég hugsanir sem stríða gegn minni eigin siðferðis- og réttlætiskennd?
Er ég að missa vitið? Er ég innst inni barnaníðingur, morðingi, eða með alvarlegar sjálfsvígslanganir? Er hætta á að ég geti ekki hamið mig? Er ég vond manneskja? Hef ég kallað dauða yfir manninn minn með því að sjá hann fyrir mér verða fyrir bíl á leiðinni heim? Eru meiri líkur á því að atburður gerist ef ég hugsa um hann? Merkir hugsunin það að mig langi til þess að gera eitthvað slæmt eða sé að óska þess að eitthvað slæmt komi fyrir? Verður það mér að kenna ef það gerist, fyrst ég hugsaði það?
Svarið er nei.
Heilinn í okkur hefur þróast yfir árþúsundir í að kalla fram allt það versta sem gæti gerst. Þú ert ekki það sem þú hugsar og þú eykur ekki líkur á því að eitthvað hræðilegt komi fyrir bara með því að hugsa það (þá myndi ég allaveganna alltaf vinna í Lottó þegar ég kaupi miða og allir sem svína fyrir mig á hringtorgum myndu samstundis hverfa ofan í svarthol).
En þegar svona hugsanir skjóta upp kollinum hefur þú val um að bregðast við eins og þú sért það sem þú hugsar eða eins og þú sért ekki það ekki. Ef þú ert í raun stórhættulegur einstaklingur í guðanna bænum LEGGÐU FRÁ ÞÉR HNÍFINN, taktu stórt skref frá svalahandriðinu, passaðu þig að hugsa ekki neitt slæmt sem gæti hent ástvin og forðastu alla rassa sem réttir eru upp í loft fyrir framan þig því ANNARS GERIST EITTHVAÐ HRÆÐILEGT. Hinn valmöguleikinn er að halda bara áfram að skera grænmetið og spjalla við dóttur þína með hnífinn í hendi, því þú ert ekki það sem þú hugsar.
Staðreyndin er sú að um 90% mannkyns fær hugsanir og sér fyrir sér atburði sem þeim finnst óþægilegir eða ógeðfelldir. Við eru bæði þróuð til þess að fá þessar hugsanir og svo erum við umkringd fréttum af hræðilegum atburðum sem koma fyrir fólk dagsdaglega.

Öll slík viðbrögð virka því miður öfugt en til er ætlast og búa til vítahring hegðunar og hugsana sem auka alla vanlíðan. Þú ert í raun að styðja við þá merkingu að þú sért ógeðsleg/ur eða hættuleg/ur. Það veldur því að hugsunum um hættuna fjölgar og nýjar aðstæður fara að vekja svipaðar hugsanir. Ef ég ætla til dæmis að forðast alla hnífa þá fer ég ósjálfrátt að leita eftir þeim í umhverfinu til að geta forðast þá. Það sama gerist ef ég reyni að hætta að hugsa um hnífa með því að ýta þeim úr huga mér, prófaðu bara núna að hætta að hugsa um regnbogalitaðan hníf.
Ef þú er komin í svona vítahring mæli ég með að þú leitir aðstoðar sálfræðings með sérþekkingu í að vinna með þráhyggju-áráttu. Ef þú hins vegar hefur bara áhyggjur af því að vera eitthvað afbrigðileg/ur fyrir hugsanir þínar þá máttu hugga þig við það að við hin hugsum svona líka.
Steinunn er sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni