Hugleiðsluhátíð - vertu með! sigga dögg skrifar 6. febrúar 2015 09:00 Friðsæld í febrúar er nú haldin í annað sinn á Íslandi Vísir/Einkasafn
Í boði náttúrunnar býður landsmönnum til að kynna sér hugleiðslu og hvetja alla til að fara að hugleiða. Til að koma þessu af stað þá er haldin hugleiðsluhátíð, Friðsæld í febrúar, sem hefst með hóphugleiðslu í Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnudaginn næstkomandi kl.11. Samkvæmt skipuleggjendum hátíðarinnar þá er markmið hátíðarinnar að: vekja áhuga á hugleiðslu og mikilvægi þess að vera til staðar í núinu. Friðsæld í febrúar er ætlað að vekja athygli á því að hugleiðsla er fyrir alla. Þeim fer fjölgandi sem áhuga hafa á að kynnast hugleiðslu af eigin raun og er hátíðinni ætlað að kynna það sem í boði er og kveikja áhuga hjá enn fleirum. Vikan er þó ekki einungis fyrir nýja hugleiðsluiðkendur heldur getur einnig nýst sem innblástur fyrir þá sem hafa áður iðkaðhugleiðslu, til að gefa aðeins í eða prufa nýjar aðferðir. Friðsæld í febrúar er árlegur viðburður þar sem athygli er beint að þeim ávinningi sem í kyrrðinni fellst og einnig í mættinum sem fylgir því að hugleiða í hóp. Með tíð og tíma viljum við að litið sé á iðkun hugleiðslu sem sjálfsagðan hlut enda ávinningur hennar margþættur.Í boði náttúrunnar hvetur þig til að hugleiða Fjöldi viðburða verður í boði víða um land líkt og gongslökun í Nauthólsvík, samflot í sundlauginni á Seltjarnarnesi, gjörhygli og nútvitund í Hveragerði og Raja Yoga hugleiðsla á Akureyri. Dagskráin er viðamikil og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.Hugleiðsla er til þess fallinn að róa hugann, auka einbeitninguna og draga úr streitu og það getur leitt til aukins heilbrigðis.
Heilsa Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning