Svefn, bætir og kætir sigga dögg skrifar 10. febrúar 2015 09:00 Góður lúr getur gert gæfumuninn Vísir/Getty
Svefn er merkilegt fyrirbæri því án hans þrífumst við ekki. Rétt eins og hvað annað hefur svefn verið töluvert rannsakaður og hér verður greint frá nokkrum áhugaverðum niðurstöðum um svefn. - Þitt huglæga mat á gæði svefnsins getur stýrt því hvernig þér líður næsta dag. Þannig að ef þú vaknar og segist hafa sofið vel og sért úthvíldur, þá gæti hugurinn fylgt eftir og dagurinn verður betri. - Á meðan við sofum þá skrásetur og flokkar hugurinn minningar, sérstaklega þær sem eru mjög tilfinningamiklar. - Ef þú svafst yfir þig þá gæti það verið vegna þess að það er fullt tungl. Sumir sofa verr þegar það er fullt tungl. Í einni rannsókn þá var fólk lengur að sofna, virkni heilans í djúpsvefni var 30% minni en venjulega og fólk svaf 20 mínútum lengur.Vísir/Getty- Ef þú sefur illa eða ekki nægilega mikið þá getur verið erfitt að halda sjálfstjórn og standast freistingar. - Þú getur lært á meðan þú sefur! Sérstaklega ef þetta er efni sem þú þekkir og hefur lært áður þá getur það styrkt minnið að hlusta á það á meðan þú færð þér lúr. - Allir vinnustaðir ættu að hvetja til lúrs. Þú getur bætt frammistöðu þína með stuttum sex mínútna lúr. - Unglingar þurfa að sofa frá einni til tveimur klukkustundum meira en fullorðnir. Það hefur verið notað sem rök fyrir því að seinka því hvenær skólinn byrjar. - Það að sofa illa getur haft áhrif á sambandið þitt, þó ekki sé nema ein nótt af slæmum svefni.
Heilsa Tengdar fréttir Börn og svefn Svefn barna er eitt algengasta umræðuefni foreldra enda mikilvægur hluti hvers dags. 2. febrúar 2015 11:00 Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning
Börn og svefn Svefn barna er eitt algengasta umræðuefni foreldra enda mikilvægur hluti hvers dags. 2. febrúar 2015 11:00