Marilyn Monroe nýtt andlit Max Factor 13. janúar 2015 10:15
Snyrtivörufyrirtækið Max Factor hefur sett af stað auglýsingaherferð um allan heim sem hefur vakið mikla athygli. Engin önnur en Hollywoodstjarnan Marilyn Monroe er andlit fyrirtækisins, 53 árum eftir dauða hennar. Max Factor hélt nýlega upp á 100 ára afmæli fyrirtækisins en Marilyn Monroe var fyrirsæta þess í upphafi feril síns. Max Factor á heiðurinn af því að breyta hinni ungu Norma Jeane í súperstjörnuna Marilyn Monroe snemma á fimmta áratugnum. „Marilyn gerði fagurrauðar varir, rjómahvíta húð og glæsilegan augnfarða að tískulínu síns tíma,“ segir Pat McGrath, listrænn hönnuður, hjá Max Factor og bætir því við að rauði Ruby Tuesday varaliturinn frá Max Factor sem var einkenni Marilyn er enn í dag einn sá vinsælasti. Hún hvetur konur sem vilja breyta til á nýju ári, að horfa til fegurðar eldri stjarnanna þegar þær velja sér snyrtivörur til þess að undirstrika sinn eigin glæsileika. Max Factor sjálfur skapaði útlit margra frægustu Hollywoodstjarna fyrri tíma eins og Jean Harlow, Rita Hayworth, Bette Davis og Judy Garland. Marilyn Monroe þótti ekki eingöngu ákaflega fögur heldur var einnig talað um hana sem kynþokkafyllstu leik- og söngkonu í Hollywood. Hún hóf ferilinn sem fyrirsæta en sneri sér að kvikmyndum um 1950. Myndir með henni nutu mikilla vinsælda. Frægustu tískublöð og netmiðlar hafa sagt frá þessari nýju herferð og má þar nefna Vogue, Glamour, Elle, Cosmopolitan og Harper‘s Bazar. Það eru spennandi tímar framundan hjá Max Factor í kjölfari þessarar herferðar.
Mest lesið Trúlofun slitið, forræðisdeila hafin og lögreglu blandað í málið Lífið Hvetur karlmenn til að leggja sig meira fram Tíska og hönnun Skíðaferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi Lífið Íslensk ungmenni fá sendar nektarmyndir í hefndarskyni Lífið Höfundur Fíusólar svarar reiðum mæðrum eftir ákall um bókabrennu Lífið Hafdís stígur fram vegna Kleina Lífið Lýsir yfir stuðningi við Hafdísi Lífið Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Tónlist Stikla úr Jóhönnu af Örk Bíó og sjónvarp Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Menning Fleiri fréttir Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira