ADHD kann sitt fag Björn Teitsson skrifar 20. desember 2014 11:00 ADHD Hljómsveitin ADHD hefur gefið út plötuna ADHD 5. Mynd/Spessi
Tónlist ADHD 5 ADHD Kongó Íslenska djasssenan virðist stundum vera eins og smekkfullur Kaffibarinn á sunnudagsmorgni. Allir hafa verið með öllum, samt spólgraðir og tilbúnir í að prófa eitthvað nýtt. Þetta er alls ekki galli, í það minnsta þegar kemur að djassinum, einfaldlega því senan er uppfull af hæfileikafólki sem gerir hana vel yfir meðallagi góða – hvort sem miðað er við höfðatölu eða ekki. Vonandi varir slíkt ástand um ókomin ár, þótt ómögulegt starfsumhverfi tónlistarkennara gæti haft þar eitthvað að segja… en förum ekki í það, hér og nú. ADHD er eitt af þessum böndum. Eins og verið sé að spila yatzy er hæfileikafólki hent í glas sem er hrist og úr verður frábær hljómsveit! Að öllu gamni slepptu er hér í alvörunni einvala lið á ferð og án nokkurs vafa eitthvað meira en tilviljunin ein sem varð til þess að hljómsveitin varð til. Hana skipa Magnús Trygvason Elíassen, sem flestir kannast líklega við úr Moses Hightower, bræðurnir Óskar og Ómar Guðjónssynir, sem hafa líklega leikið með öllum málsmetandi hljómsveitum á Íslandi á einhverjum tímapunkti, og loks Davíð Þór Jónsson, jú, sem sömuleiðis hefur komið víða við – leikið með Mugison, Memfismafíunni, Gus Gus… þetta tæki allan daginn. Þessir gaurar kunna sitt fag, látum það duga. ADHD 5 er nýjasti afrakstur þessa samstarfs, fimmta platan eins og nafnið gefur til kynna. Hún hefur nú þegar vakið mikla athygli, valin á Kraumslista og tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna. Og það skiljanlega. Platan rennur ljúflega í gegn og tekur hlustandann á ferðalag, allt frá fyrstu tónum í Sveðjunni, sem einkennist af hægum, öruggum takti og tilraunakenndum gítarleik og yndislega viðkvæmum melódíum saxófóns og píanós. Virðing er borin fyrir öllum hljóðfærum, það fá allir að njóta sín. Greina má tilraunamennsku á öðrum stöðum sem verður þó, mjög ánægjulega, aldrei tilgerðarleg. Og það er einnig gleðiefni að platan er alls ekki „óverpródúseruð“ sem hefur ef til vill verið helsti hængur djassins á Íslandi. Þetta er hárfín lína milli nákvæmni og óreiðu… já, þessir gaurar kunna sitt fag. Bravó!Niðurstaða: Frábær gripur sem er skyldueign allra djassgeggjara. Einvala lið hljóðfæraleikara tiplar á hárfínni línu milli nákvæmni og óreiðu á meistaralegan hátt.ADHD 5 er nýjasti afrakstur þessa samstarfs, fimmta platan eins og nafnið gefur til kynna. Hún hefur nú þegar vakið mikla athygli, valin á Kraumslista og tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna. Og það skiljanlega. Platan rennur ljúflega í gegn og tekur hlustandann á ferðalag, allt frá fyrstu tónum í Sveðjunni, sem einkennist af hægum, öruggum takti og tilraunakenndum gítarleik og yndislega viðkvæmum melódíum saxófóns og píanós. Virðing er borin fyrir öllum hljóðfærum, það fá allir að njóta sín. Greina má tilraunamennsku á öðrum stöðum sem verður þó, mjög ánægjulega, aldrei tilgerðarleg. Og það er einnig gleðiefni að platan er alls ekki „óverpródúseruð“ sem hefur ef til vill verið helsti hængur djassins á Íslandi. Þetta er hárfín lína milli nákvæmni og óreiðu… já, þessir gaurar kunna sitt fag. Bravó! Niðurstaða: Frábær gripur sem er skyldueign allra djassgeggjara. Einvala lið hljóðfæraleikara tiplar á hárfínni línu milli nákvæmni og óreiðu á meistaralegan hátt.
Gagnrýni Menning Mest lesið Rússland aftur í Eurovision - undirskriftarsöfnun Lífið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Lífið Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Lífið samstarf Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Lífið Fleiri fréttir Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira