Kúgast við munnmök Sigga Dögg skrifar 1. nóvember 2014 13:45 visir/getty
Spurning: Mig langaði mikið að spyrja þig að einu vandamáli hjá mér. En þannig er mál með vexti að við kærastinn minn erum búin að vera saman í að verða átta mánuði og hef ég alveg frekar oft tottað hann og allt í lagi, en finnst það samt alltaf svo óþægilegt því ég er bara með svo mikla fóbíu fyrir sæði upp í munninn og þessum fyrirslímsvökva sem kemur á meðan á totti stendur. Upp á síðkastið hef ég meira verið að neita honum um að gera þetta en finnst það leiðinlegt því mig langar svo mikið að gera þetta fyrir hann og veit um margar aðrar stelpur þar sem þetta er ekkert mál hjá. Veit bara ekki, á ég að halda áfram að vera að þessu, líða illa yfir þessu, kúgast endalaust, (ældi smá í eitt skiptið) eða bara neita honum alveg um þetta? Vildi að þetta væri ekkert mál hjá mér og ég gæti gert þetta endalaust því það er bara þessi klígja í mér sem stoppar mig að gera þetta.Sigga Dögg: Mitt svar er kannski aðeins of einfalt en látum á það reyna. Ef þér finnst þetta ógeðslegt þá mæli ég með því að þú sleppir þessu. Njóttu kynlífs af því það er unaðslegt en ekki ógeðslegt og það á bæði við þegar það kemur að því að gefa og þiggja. Þú ert ekkert skrítin, margir strákar og stelpur upplifa nákvæmlega það sama. Það langar ekki alla til að þiggja munnmök, eða gefa munnmök. Það sem skiptir máli í kynlífi er að ykkur báðum líði vel. Varla myndir þú pína hann í stellingu sem honum þætti óþægileg og myndi krefjast þess að hann héldi áfram þó væri kannski með sinadrátt og fastur í bakinu? Nei, ég hélt ekki. Kynlíf er skemmtilegt samstarfsverkefni. Það er margt annað hægt að gera í kynlífi en munnmök. Þá gæti verið gaman fyrir ykkur að prófa að nota sleipiefni við næsta kelerí því það getur gert gælur ánægjulegri fyrir báða aðila. Útskýrðu þína upplifun fyrir honum og saman getið þið gert aðra hluti sem þið bæði njótið.
Heilsa Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Terry Reid látinn Lífið Loni Anderson er látin Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið