Ég fann pönkið í mér Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. júlí 2014 15:30 "Þemað hjá mér er nýtni og sjálfbærni,“ segir Gunnhildur. Mynd/Douglas Arthur
Gunnhildur er að koma úr sundlauginni á Ísafirði með sínum fjórum strákum og það er líflegt í kringum hana þegar hún svarar í símann. En það truflar hana ekki í að segja mér frá listsýningunni Regnbogapönk sem hún ætlar að opna á morgun klukkan fimm í Slunkaríki, Aðalstræti 7 á Ísafirði. „Ég fann pönkið í mér og þemað hjá mér er nýtni og sjálfbærni. Verkin mín endurspegla það,“ segir Gunnhildur. „Það birtir visst viðhorf til lífsins að búa til eitthvað úr hlutum sem maður á til og gerir sjálfur.“glysrokkpönk Fimm stelpur slamma boðorðin. Mynd/Úr einkasafniSjónvarp með vígtennur heitir einn skúlptúrinn. „Í vídeóverki sem þar er sýnt eru fimm stelpur að slamma boðorðin tíu,“ útskýrir listakonan og kveðst vera að krítisera raunveruleikasjónvarp þar sem fólk sé annaðhvort rakkað niður eða oflofað. Gunnhildur er líka að gefa út ljóðabókina Gerðu það sjálf ljóð/DIY Poetry sem er bæði á ensku og íslensku og er með hana á sýningunni. „Þetta er býsna blandað efni en hefur þó yfir sér ákveðna heild,“ segir hún.Sýningin stendur til 9. ágúst, Slunkaríki er opið alla daga milli 12 og 22 og aðgangur er ókeypis.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira