Tónleikar Bryn Terfel frestast fram á næsta ár 3. júlí 2014 11:00 Bryn Terfel varð að hætta að syngja á tónleikum á Listahátíð í maí vegna veikinda. Nú er ljóst að hann kemur ekki aftur til Íslands fyrr en að ári. Mynd/NordicPhotosGetty
Vegna ófyrirsjáanlegra kringumstæðna færast einsöngstónleikar Bryn Terfel sem tilkynntir höfðu verið 10. júlí næstkomandi til Listahátíðar 2015. Söngvarinn heimsfrægi þurfti að hætta Listahátíðartónleikum sínum í Eldborg þann 24. maí skömmu eftir að þeir hófust, vegna skyndilegra veikinda í hálsi. Stuttu eftir að tónleikunum lauk, var tilkynnt að hann kæmi aftur 10. júlí. Nú er ljóst að vegna ófyrirsjáanlegra kringumstæðna getur ekki orðið af þeim tónleikum en Terfel, sem er einn eftirsóttasti bass-baritón söngvari heims, hefur þess í stað staðfest komu sína á Listahátíð í Reykjavík að ári, með nýja efnisskrá í farteskinu. Dagsetning tónleikanna verður tilkynnt í byrjun ágúst og hefst miðasala 1. september. Þeir sem keyptu miða á tónleikana 24. maí og sjá sér ekki fært að sækja tónleikana að ári, geta óskað eftir endurgreiðslu frá og með deginum í dag og til 31. ágúst. Þeir sem hyggjast sækja tónleikana, þurfa ekki að gera neitt: Miðar þeirra verða endurútgefnir eftir 31. ágúst fyrir tónleikana 2015 og sendir heim. Nánari upplýsingar um framkvæmd endurgreiðslu og endurnýjun miða fást í miðasölu Hörpu í síma 528 5050 eða um netföngin midasala@harpa.is og jona@harpa.is.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira