Ekkert yfirgengilega framúrstefnulegt Friðrika Benónýsdóttir skrifar 19. maí 2014 09:30 Stórsveit Reykjavíkur. „Það tíðkast innan djassgeirans að vera hljóðfæraleikari og fást jafnframt við tónsmíðar,“ segir Haukur Gröndal.
Á þessum tónleikum verður frumflutt tónlist eftir þrjá af meðlimum sveitarinnar, þá Kjartan Valdemarsson, Snorra Sigurðarson og mig,“ segir Haukur Gröndal um efnisskrá tónleika Stórsveitar Reykjavíkur í Hörpu í kvöld. „Það er liður í starfi þessarar hljómsveitar að frumflytja ný verk sem eru skrifuð fyrir big band.“ Haukur segir ekkert óvenjulegt við það að hljómsveit frumflytji samtímis verk eftir þrjá af meðlimunum. „Það tíðkast innan djassgeirans að vera hljóðfæraleikari og fást jafnframt við tónsmíðar,“ segir hann. „Kannski er það aðeins óvenjulegra að skrifa fyrir svona stórt batterí, en í stórsveitinni eru átján manns.“ Spurður hvort verk þeirra þriggja séu mjög ólík segir Haukur það liggja í hlutarins eðli. „Við erum mjög ólíkir tónlistarmenn og það speglast auðvitað í verkunum,“ segir hann. „Þetta skiptist þannig að það eru frumflutt fjögur verk eftir mig, tvö eftir Kjartan og tvö eftir Snorra, þannig að þetta er svona sirka klukkutíma dagskrá.“ Beðinn að skilgreina eigin verk hummar Haukur um stund en segir svo: „Það er dálítið erfitt að lýsa því beint. Ég er undir töluverðum áhrifum frá þjóðlagatónlist ýmiss konar og einnig frá útsetjara sem heitir Gil Evans, Kanadamanni sem skrifaði mikið fyrir big bönd. Mér finnst tónlist mín líka hafa ákveðinn íslenskan tón, þótt aðrir heyri það kannski ekki, því ég hef orðið fyrir pínu áhrifum frá þjóðlagatónlistinni okkar. Ég nýti áhrif héðan og þaðan þannig að þetta er ekki beint hefðbundin stórsveitartónlist, en þó ekki neitt yfirgengilega framúrstefnulegt að þessu sinni.“ Haukur hefur ekki áður samið verk fyrir Stórsveit Reykjavíkur og segist ekki fyrr hafa samið verk af þessari stærðargráðu. „Ég hef útsett töluvert af tónlist eftir aðra fyrir big bönd og síðan hef ég haldið úti sveit sem nefnist Frelsissveit Íslands og er átta manna band þar sem ég hef útsett tónlist bæði eftir sjálfan mig og aðra. Þannig að ég hef lengi fengist við að skrifa fyrir stærri hópa en þessi hefðbundnu þriggja til fjögurra manna bönd sem maður þekkir innan djassins.“Tónleikarnir eru í Kaldalóni í Hörpu og hefjast klukkan 20.30 í kvöld.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira