Áttu að aðstoða við fjáröflun Snærós Sindradóttir skrifar 7. maí 2014 06:00 Þórir Ingþórsson, formaður KFR.
Formaður Kjördæmasambands framsóknarfélaganna í Reykjavík, Þórir Ingþórsson, lagði til að frambjóðendur Framsóknarflokksins í Reykjavík kæmu að fjáröflun fyrir framboðið og að gengið yrði frá samkomulagi um það. Hann segir frambjóðendur þó ekki hafa verið beðna um að skrifa undir sjálfsskuldarábyrgð því tengdu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Þórir sendi Fréttablaðinu í gær vegna forsíðufréttar blaðsins um fjármál framboðsins. Þórir segir að frambjóðendum hafi litist illa á hugmyndir hans um aðkomu þeirra að fjáröflun fyrir flokkinn og hugmyndirnar hafi ekki hlotið samþykki í stjórn kjördæmasambandsins. Í fréttinni er haft eftir Guðrúnu Bryndísi Karlsdóttir, sem skipaði annað sæti lista Framsóknarflokksins, að margar hugmyndir hafi verið uppi um fjármögnun framboðsins og segir Guðrún: „Ein þeirra leiða var að fjársterkir einstaklingar styrktu framboðið um meira en 400 þúsund en styrkirnir yrðu skráðir sem kaup á happdrættismiðum.“ Í tilkynningu Þóris er þessu vísað á bug. „Hafi Guðrún Bryndís Karlsdóttir heyrt af slíkum hugmyndum geta þær ekki verið komnar frá stjórn KFR,“ segir Þórir. Aldrei hafi staðið til að sniðganga eða brjóta reglur um fjármál stjórnmálaflokka. Allar fréttir af sveitarstjórnarkosningunum 2014 má nálgast á Kosningavef Vísis, visir.is/kosningar
Kosningar 2014 fréttir Kosningar 2014 Höfuðborgarsvæðið Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira