Engin uppgjöf þrátt fyrir 30 marka tap Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. febrúar 2014 08:30 Orri Freyr Gíslason er sloppinn í gegn en Vilhelm Gauti Bergsveinsson virðist furðu lostinn. fréttablaðið/valli
Áhorfendur í Vodafone-höllinni á föstudagskvöld urðu vitni að ótrúlegum handboltaleik þegar að heimamenn hreinlega gengu frá botnliði HK í Olísdeild karla með 30 marka sigri, 48-18. Sigurinn kom fáum á óvart en enginn bjóst við að lið sem varð Íslandsmeistari fyrir aðeins tveimur árum myndi grúttapa með 30 marka mun. „Ég reyni yfirleitt að draga lærdóm af hverjum leik en þetta var þannig frammistaða að það er einfaldlega ekki hægt að læra neitt af henni,“ sagði Samúel Ívar Árnason, þjálfari HK, við Fréttablaðið um helgina. Hann stýrði sínum mönnum á æfingu í hádeginu á laugardag og sagði hana hafa gengið vel. „Við erum búnir að ræða vel saman og enginn vill upplifa aðra eins tilfinningu eftir leik aftur svo lengi sem menn stunda þessa íþrótt. Menn skammast sín vitanlega en þetta er bara einn leikur í stóra samhenginu og bara tvö stig sem töpuðust,“ bætir Samúel Ívar við.Víðir Reynisson, formaður handknattleiksdeildar HK, tók í svipaðan streng. „Það stóð ekki steinn yfir steini í neinu sem hafði verið undirbúið fyrir leik. En það er góður andi í hópnum og mikill hugur á að snúa genginu við,“ segir formaðurinn sem hefur ekki áhyggjur af liðinu. „Það kann kannski að koma einhverjum á óvart en það er engin örvænting hjá okkur. Þegar við hófum tímabilið vissum við vel að við værum með ungt lið í höndunum og að veturinn yrði erfiður,“ segir Víðir. Eftir að HK varð Íslandsmeistari árið 2012 hefur liðið misst gríðarlega marga leikmenn. Margir hverjir hafa fengið tækifæri erlendis og sumir, líkt og varnartröllið Bjarki Már Gunnarsson, unnið sér fast sæti í íslenska landsliðshópnum. „Við tókum ákvörðun í sumar um að leggja af stað í 3-4 ára verkefni þar sem stefnt væri að því að hlúa að okkar eigin leikmönnum og byggja upp lið fyrir framtíðina. Við vorum undir það búnir að falla og erum enn, þó svo að það sé að sjálfsögðu fullur hugur í mönnum að gera allt sem til þarf til að bjarga sæti liðsins í deildinni,“ segir Víðir og bætir við að það hafi ekki komið til greina að kaupa dýra leikmenn til félagsins í janúar til að styrkja liðið fyrir síðari hluta tímabilsins. „Við ætlum að einbeita okkur áfram að því að byggja upp að nýju og búa til fleiri góða leikmenn eins og við höfum gert síðustu árin.“ Samúel Ívar á það verðuga verkefni fyrir höndum að undirbúa liðið fyrir erfiðan leik gegn toppliði Hauka á fimmtudagskvöldið. „Það er engin uppgjöf í okkar leikmönnum. Þrátt fyrir allt hefur margt jákvætt einkennt okkar leik í vetur og það versta sem hægt er að gera er að láta ein mistök orsaka önnur. Það er alltaf næsti leikur og næsta verkefni sem tekur við.“Staðreyndir um 30 marka sigur Vals á HK - Skotnýting Vals var 84% í leiknum öllum og 96% síðustu 28 mínútur leiksins. Skotnýting HK var 44%. - Markverðir HK vörðu ekki eitt skot í síðari hálfleik. Samanlögð hlutfallsmarkvarsla þeirra í leiknum var 7,7%. - Markverðir Vals vörðu báðir ellefu skot í leiknum og voru báðir með minnst 50% hlutfallsmarkvörslu. - HK skoraði fimm mörk í síðari hálfleik, þar af þrjú á síðustu 20 mínútunum. Eitt var þó svokallað „sirkusmark“. - Markaskorun Vals dreifðist á ellefu leikmenn sem allir skoruðu að minnsta kosti tvö mörk í leiknum. Ef víti eru talin frá skoraði enginn þeirra meira en sex mörk. - Valur komst tvívegis á 8-0 sprett í leiknum – bæði skiptin í seinni hálfleik. - Sigurinn er sá stærsti í efstu deild karla í að minnsta kosti 20 ár. Árið 2007 vann Stjarnan 26 marka sigur á ÍBV, 44-18, en sigur Vals slær honum við.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - HK 48-18 | Þrjátíu marka sigur Vals Valur gjörsamlega valtaði yfir HK í Olís-deild karla í kvöld, en lokatölur urðu 48-18. Valsmenn leiddu í hálfleik með ellefu marka mun. Þrjátíu marka munur varð svo raunin. Ótrúlegar tölur. 7. febrúar 2014 17:44 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - HK 48-18 | Þrjátíu marka sigur Vals Valur gjörsamlega valtaði yfir HK í Olís-deild karla í kvöld, en lokatölur urðu 48-18. Valsmenn leiddu í hálfleik með ellefu marka mun. Þrjátíu marka munur varð svo raunin. Ótrúlegar tölur. 7. febrúar 2014 17:44