Innlent

Dimmum vökustundum fjölgar um 190 ef klukkunni verður seinkað

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Morgnar yrðu bjartari en það yrði á kostnað birtustunda á vökutíma.
Morgnar yrðu bjartari en það yrði á kostnað birtustunda á vökutíma. Vísir/Einar
Seinkun klukkunnar á Íslandi mun ekki fjölga birtustundum sem falla á venjulegum vökutíma heldur þvert á móti. Þetta kemur fram í umfjöllun á Vísindavef Háskóla Íslands um málið. Þar segir að ef klukkunni á Íslandi yrði seinkað um klukkustund frá því sem nú er myndi þeim stundum þegar dimmt er á vökutíma fjölga talsvert.

Klukkan á Íslandi endurspeglar ekki legu landsins.Vísir/Stefán
„Áhrifin yrðu þau að í Reykjavík mundi dimmum stundum á vökutíma, miðað við að sá tími sé frá kl. 7 á morgnana til kl. 23 á kvöldin, fjölga um 131 stund á ári,“ segir í svarinu sem byggir á pistli Þorsteins Sæmundssonar og Gunnlaugs Björnssonar Um seinkun klukkunnar á vef Almanaks Háskóla Íslands. Þar segir einnig að ef miðað er við vökutíma sé frá 8-24 fjölgi dimmum vökustundum um 190 á ári.

Breytingar myndu hinsvegar, eins og bent hefur verið á af þeim sem styðja breytinguna, hafa þau áhrif að bjartar yrði á morgnana þegar börn fara í skóla og menn til vinnu. „Á hinn bóginn eru bjartari morgnar keyptir því verði að fyrr dimmir síðdegis þegar umferð er meiri og börn á leið úr skóla,“ segir á Vísindavefnum.

Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, er einn þeirra sem vill breyta klukkunni.Vísir/Daníel
Þingmenn Bjartrar framtíðar hafa lagt fram tillögu um að seinka klukkunni á Íslandi um klukkustund oftar en einu sinni. Þingmenn flokksins lögðu síðast fram þannig tillögu á þingi ásamt þingmönnum nokkurra annarra flokka í haust. Í greinargerð segir að miðað við gang sólar sé Ísland rangt skráð og síðan 1968 hafi alltaf verið stillt á sumartíma.

Þá er einnig bent á að umferðarþungi bendi til þess að fólk nýti almennt síðdegið fremur en morgna til að sinna erindum sínum, hvort sem um ræðir vetur eða sumar. Að því má leiða að það stjórnist því ekki af birtunni einni saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×