Búið er að opna Reykjanesbraut en veður enn mjög slæmt á landinu Aðalsteinn Kjartansson skrifar 16. desember 2014 16:42 Úr miðbæ Reykjavíkur í dag. Vísir/Vilhelm
Búið er að opna Reykjanesbraut aftur og eru flestar aðalleiðir í grennd við höfuðborgarsvæðið að opnast. Enn er þó lokað á Grindavíkurvegi og Suðurstrandarvegi. Eins er lokað á Mosfellsheiði og eins frá Rauðavatni austur yfir Sandskeið, Hellisheiði og Þrengsli. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að hálka sé á Reykjanesbraut. Enn er stórhríð á utanverðu Snæfellsnesi og ófært á Vatnaleið og þar fyrir vestan á norðanverðu nesinu. Eins er stórhríð á Útnesvegi og Fróðárheiði. Vegagerðin segir að ófært sé á Holtavörðuheiði og þungfært í norðanverðum Hrútafirði. Annars éljar eða skafrenningur um mest allt Vesturland og alls staðar er snjóþekja eða hálka. Versnandi veður er á Vestfjörðum, stórhríð er á Klefaheiði, Mikladal og Hálfdáni en þar er vegurinn ófær. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Klettsháls, og í Ísafjarðardjúpi og snjóþekja og stórhríð er á Flateyrarvegi. Á öðrum stöðum er snjóþekja eða hálka og vaxandi ofankoma og skafrenningur. Snjóþekja og hálka á flestum vegum á Norðurlandi en þar fer veður versnandi. Þæfingsfærð og stórhríð er í Húnavatnssýslum og á Skagastrandarvegi auk þess sem ófært er og stórhríð á Þverárfjalli, á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði. Vegurinn um Dalsmynni er lokaður. Snjóþekja og stórhríð er á Mývatnsöræfum en snjóþekja og óveður er á Möðrudalsöræfum, að því er fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar. Frá Kirkjubæjarklaustri og vestur fyrir Vík er þæfingsfærð og snjókoma og óveður við Hvamma og á Austur- og Suðausturlandi er snjóþekja, hálka eða hálkublettir á velflestum vegum.
Veður Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Innlent Fleiri fréttir Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Sjá meira