Viðskipti innlent

Hægt að framleiða nóg af lífolíu til íblöndunar

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Auknar kröfur eru um hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis frá og með áramótum.
Auknar kröfur eru um hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis frá og með áramótum. Vísir/Getty Images
Næg framleiðslugeta er á vistvænu eldsneyti hér á landi til að hægt sé að hækka hlutfall hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í fimm prósent. Frá og með áramótum verður þess krafist í lögum en í dag er krafa gerð um 3,5 prósent hlutfall lífræns eldsneytis. Þetta fullyrðir Ingi Örn Gíslason, framkvæmdastjóri Bioenergi, sem framleiðir bio diesel.

„Það er ekki skortur á því og það er ekki bara hvaða eldsneyti sem er, heldur er það Evrópuvottað,“ segir Ingi Örn. „Það er sambærilegt eldsneyti og bio diesel sem keyrt er um á í Þýskalandi, Svíþjóð og allstaðar í kringum okkur.“

Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu.Vísir
Framleiðsla stjórnast af eftirspurn

Ingi Örn segir olíufélögin þó vera treg til að kaupa lífræna eldsneytið. „Auðvitað eru þeir ekki endilega sáttir við það því það er kostnaðarsamt fyrir þá,“ segir hann. „Bio diesel er kostnaðarsamara allstaðar í heiminum heldur en venjulegur diesell.“ Framleiðsla Bio Energi fer fram á Íslandi með innfluttri repjuolíu frá Danmörku.



Í fréttum Stöðvar 2 í gær
 var sagt frá því að á síðasta ári voru flutt inn tæplega þrjú þúsund tonn af lífolíu en aðeins 155 tonn voru framleidd innanlands. Þá sagði Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, að innlend framleiðsla standi ekki undir auknu hlutfalli lífolíu. 

Ingi Örn segir það hinsvegar vera spurningu um eftirspurn. „Það er hægt að framleiða eins mikið magn og menn vilja kaupa,“ segir hann.  Bioenergi hefur unnið að þróun lífolíu síðastliðið ár og aflað tilskilinna leyfa. Ingi Örn staðfestir að unnið hafi verið með olíufélögum hér á landi og Orkustofnun að því. 

Frosti segir kröfur ESB ekki taka tillit til þess að mikið sé til af endurnýjanlegri raforku á Íslandi.Vísir/Daníel
Vill frekar skoða raforku

Frosti Sigurjóns, þingmaður og formaður efnahags- og viðskiptanefndar, sagði á þingi í morgun að hann vildi fresta gildistöku ákvæðisins til ársins 2020. Þannig sér hann fyrir sér að hægt sé að spara 6 milljarða króna sem annars myndi líklega renna til erlendra olíufélaga. 

Evrópusambandið gerir þá kröfu að hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í samgöngum verði 10 prósent frá og með 2020. Frosti segir að ekki sé tekið tillit til aðstæðna á Íslandi í þeirri kröfu en hér á landi sé nóg af endurnýjanlegu rafmagni. 

„Fyrir Ísland væri skynsamlegt að niðurgreiða kaup á rafmagnsbílum, miklu skynsamlegra en að eyða milljörðum úr ríkissjóði til að niðurgreiða rándýran lífdísil sem ræktaður er á dýrmætu akurlandi sem fremur ætti að nýta til framleiðslu á fæðu,“ sagði hann.


Tengdar fréttir

Vistvænt eldsneyti ekki nægt innanlands

Seljendur eldsneytis hér á landi þurfa að flytja inn enn meira af dýrum vistvænum eldsneytisefnum á næsta ári en þeir gera núna með tilheyrandi tapi fyrir ríkissjóð og flutningsmengun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×