Stelpusleikur sigga dögg skrifar 4. nóvember 2014 11:00 Madonna og Britney Spears kysstust og heimurinn stóð á öndinni eða hvað? Mynd/Getty
Katy Perry söng um það sem var á allra vörum, stelpur að kyssa aðrar stelpur. Þekktar leikkonur og söngkonur gengu enn lengra og fóru í sleik fyrir framan alheim á verðlaunahátíðum. Það er talið samfélagslega eðlilegt að gagnkynhneigðar stelpur kyssi aðrar stelpur og sumir jafnvel telja það ekki vera framhjáhald ef viðkomandi er í sambandi við strák því þetta sé bara eitthvað sem stelpur geri. Ef þú hefur ekki gert það þá eigir þú bara eftir að gera það eða þig langi raunverulega til þess að þorir því ekki. Umræðan er stundum á þann hátt að þetta blundi í öllum konum en að þessu forvitni stoppi við kossinn.Af hverju kyssa gagnkynhneigðir strákar ekki aðra stráka?Mynd/GettyAf hverju kyssa stelpur aðrar stelpur? Þetta hefur aðeins verið rannsakað og virðist það renna stoðum undir því að þetta sé frekar algengt en sérstaklega í félagslegu samhengi (í teiti eða á skemmtistað) þar sem þetta er gert þegar áfengi er við hönd og þá gjarnan til að vekja athygli á sér, ögra eða bara hafa gaman. Kossinn virðist því vera minna fyrir þig og meira fyrir þá sem eru í kringum þig, sérstaklega karlmenn sem nú sjá þig í kynferðislegu ljósi. Kossinn snýst því minna um að njóta hans sem slíks og meira um hina sem ekki taka þátt í kossinum. Þetta er þó ekki alveg svona svarthvítt því þetta getur einnig verið leið til að kanna kynferðislegan áhuga á öðrum stelpum og eigin kynhneigð. Þá er það einnig áhugavert af hverju sama gildir ekki um stráka og af hverju þeir fái ekki þetta frelsi til að kanna eigin kynhneigð og fjölga möguleikanum á sleikfélögum um helming.
Heilsa Lífið Tengdar fréttir Kysstu mig! Hefur þig ekki alltaf langað að vita af hverju fólk kyssist? 3. nóvember 2014 11:00 Mest lesið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Hélt við konu besta vinar síns Lífið Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Lífið Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Lífið samstarf Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning