Fótbolti

Kári Árna: Liðin skapað afar fá færi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kári á blaðamannafundinum í dag.
Kári á blaðamannafundinum í dag. Vísir/Vilhelm
Kári Árnason er ánægður með varnarleikinn hjá íslenska landsliðinu hingað til, en liðið hefur haldið hreinu í tveimur fyrstu leikjum sínum í undankeppninni. Markatalan eftir leikina tvo; 6-0.

„Við áttum alveg von á þessu sérstaklega eftir sigurinn á Tyrkjum. Það kom ekkert annað til greina en sigur gegn Lettum," sagði Kári Árnason í samtali við Vísi.

„Við vissum hvernig leikurinn myndi þróast og við lögðum leikinn virkilega vel upp. Þetta var þolinmæðisvinna, en við bjuggumst ekki við þeim svona aftarlega."

Kári er skiljanlega ánægður með varnarleikinn í mótinu hingað til.

„Þeir settu litla sem enga pressu á okkur og við fengum bara að halda boltanum eins og við vildum. Við sköpuðum færi í fyrri hálfleik og þegar við sáum það í hálfleik að við náðum að skapa færi þrátt fyrir að þeir væru svona aftarlega þá var ekkert annað í stöðunni enn að vinna."

„Það er okkar hlutverk í þessu liði er að halda búrinu hreinu og það hefur tekist vel. Liðin sem við höfum spilað á móti hafa skapað afar fá færi."

„Tyrkir áttu eitt alvöru færi sem var í síðari hálfleik þegar þeir skutu yfir í stöðunni 1-0, en í Lettaleiknum voru þeir aldrei hættulegir nema í nokkrum föstum leikatriðum."

„Við erum búnir að stilla saman strengina. Við erum meira solid sem varnarlið. Það hjálpar að ég, Ragnar og Ari Freyr erum búnir að spila saman flesta leikina í síðasta móti og núna aftur. Elmar er svo búinn að koma frábærlega inn."

„Þetta verður prófraun á allt liðið. Það er lykilatriði að verjumst sem heild. Ein varnarlína er ekki að fara halda Arjen Robben og Robin van Persie niðri. Við þurfum allir að verjast vel," sagði Kári og bætti við að lokum að hann vonaðist til að liðið myndi kroppa í að minnsta kosti eitt stig á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×