Fótbolti

Sverrir: Ætlum að vera duglegri að halda boltanum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Strákarnir voru léttir á æfingunni í gær.
Strákarnir voru léttir á æfingunni í gær. Vísir/Pjetur
„Það er mikill spenningur og tilhlökkun í liðinu. Við spiluðum hörkufínan leik gegn þeim á föstudaginn og við ætlum að gera það sama á morgun (í dag), nema kannski að halda boltanum betur og skapa okkur fleiri færi,“ sagði Sverrir Ingi Ingason, fyrirliði U-21 árs landsliðsins, í samtali við Vísi fyrir æfingu liðsins í Egilshöll í gær.

Ísland mætir sem kunnugt er Danmörku í seinni leik liðanna um laust sæti á EM 2015 í Tékklandi á Laugardalsvelli í dag, en liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Álaborg.

„Við erum búnir að skoða hvað við gerðum vel í leiknum ytra og hvað við megum gera betur. Við erum búnir að rýna í það hvaða möguleika við höfum þegar við vinnum boltann og hvað við getum gert betur þar. Við vonumst til að halda sama aga og spila svipaðan varnarleik, en nýta sóknarmöguleikana betur,“ sagði Sverrir, en voru leikmenn og þjálfarar íslenska liðsins sáttir með leikinn úti í Álaborg?

„Við erum ekkert í þessu til að gera menn ánægða hér og þar. Við erum bara í þessu til að reyna að komast áfram. Og þegar þú ert kominn í umspil fyrir lokamót gerirðu allt sem í þínu valdi stendur til að komast áfram, sama hvernig þú ferð að því.

„Við vissum að Danirnir væru með frábært lið og þeir skoruðu liða mest í undankeppninni. Við þurftum að vera agaðir, en þegar leið á leikinn náðu þeir að ýta okkur aðeins of aftarlega,“ sagði fyrirliðinn sem vill sjá íslenska liðið halda boltanum betur í seinni leiknum.

„Við ætlum að vera duglegri að halda í boltann þegar við vinnum hann. Það mun gerast, við erum fullvissir um það. Svo þurfum við að nýta föst leikatriði betur og við fáum líklega fleiri slík tækifæri á morgun (í dag). Ein hornspyrna til eða frá getur skipt sköpum.“

Sverrir, sem leikur með Viking í norsku úrvalsdeildinni, vonast eftir góðum stuðningi áhorfenda, svipuðum og þegar Ísland mætti Frakklandi í riðlakeppninni fyrir ári síðan.

„Það var frábært að sjá hversu margir mættu til að styðja okkur þá. Við höfum sýnt það í undankeppninni að við getum skorað á móti bestu þjóðunum. Við skoruðum þrjú mörk á móti Frökkum og sóttum vel í þeim leik. Við fengum mörg góð tækifæri á móti einu besta liði heims í þessum árgangi.

„Við erum allir orðnir betri leikmenn síðan þá og við erum betra lið. Við erum spenntir fyrir leiknum,“ sagði Sverrir að endingu.


Tengdar fréttir

Hólmbert: Tók á að verjast svona mikið

"Þetta þarf maður stundum að gera þegar maður er að spila á útivelli gegn mjög góðu liði," segir framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson og glotti eftir markalausa jafnteflið í Álaborg í kvöld.

Guðmundur: Annað hugarfar á útivelli

"Ég hefði oft á tíðum viljað sjá okkur halda boltanum betur í leiknum. Það voru mikil hlaup um allan völl en á miðjunni var þetta sérstaklega erfitt," sagði miðjumaðurinn Guðmundur Þórarinsson eftir markalausa jafntefli gegn Dönum í Álaborg í kvöld.

Ólafur Karl: Erfitt að glíma við Scholz

"Þetta var erfitt enda okkar áætlun að verjast. Ég ætlaði ekkert að fara á móti því," sagði Stjörnumaðurinn Ólafur Karl Finsen eftir leik Danmerkur og Íslands í Álaborg.

Myndaveisla frá æfingu U-21 árs landsliðsins

Íslenska U-21 árs landsliðið í fótbolta æfði í Egilshöll í dag, en strákarnir undirbúa sig nú fyrir seinni leikinn gegn Danmörku í umspili um sæti á EM 2015.

Enginn leikmaður svindlaði allan leikinn

Hið sókndjarfa U-21 árs lið Dana hafði nánast skorað að vild í undankeppni EM en átti engin svör við sterkum varnarleik Íslands í Álaborg í gær. Rimma liðanna um laust sæti á EM er galopin eftir markalaust jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×