Halda Óskar Örn og Kjartan Henry áfram að hrella ÍBV? | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. júlí 2014 12:30 Eiður Aron Sigurbjörnsson og Gunnar Þorsteinsson í baráttunni og Óskar Örn Hauksson fylgist með. vísir/stefán
ÍBV og KR mætast í undanúrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld, en búist er við fjölmenni á völlinn þar sem Þjóðhátíð hefst í dag.Leikurinn hefst klukkan 18.00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Eyjamenn vonast til að jarða KR-grýluna í bikarnum, en Íslandsmeistararnir hafa unnið ÍBV í Eyjum í bikarkeppninni þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum. Þessi rispa hófst árið 2010 þegar KR vann ÍBV í 32 liða úrslitum, 1-0. KjartanHenryFinnbogason skoraði eina markið á 52. mínútu. Tveimur árum síðar mættust liðin aftur í góðum fótboltaleik, en þá vann KR aftur, 2-1. Eyjamenn komust yfir með marki Eyþórs Helga Birgissonar, sem nú leikur með Ólafsvík, á 17. mínútu. En þá mætti til leiks Óskar Örn Hauksson. Hann skoraði tvö glæsileg mörk á síðustu fjórum mínútum leiksins og skellti ÍBV í átta liða úrslitum keppninnar. Þessi mörk má sjá í lýsingu Valtýs Bjarnar Valtýssonar hér að neðan. Liðin mættust svo aftur í átta liða úrslitunum í fyrra, en þá vann KR öruggan sigur, 3-0. Eyjamenn léku reyndar manni færri frá 34. mínútu eftir að framherjinn AaronSpear fékk rautt spjald og Ragnar Pétursson fauk út af mínútu fyrir leikslok. Óskar Örn Hauksson skoraði fyrsta mark KR, en Kjartan Henry Finnbogason hin tvö. Þeir tveir hafa séð um markaskorun KR í þessum þremur leikjum. Enski bakvörðurinn Matt Garner er eini Eyjamaðurinn sem spilað hefur alla þrjá leikina, en minni breytingar hafa verið á KR-liðinu. Grétar Sigfinnur Sigurðarson, BaldurSigurðsson og Kjartan Henry Finnbogason spiluðu leikina þrjá og verða væntanlega í eldlínunni í kvöld. Hér að neðan má sjá mörkin og helstu atvik úr leikjunum frá 2012 og 2013.Óskar Örn sér um ÍBV 2012: 3-0 sigurinn 2013:
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Verða vonandi tólfti leikmaður liðsins KR hefur hent ÍBV úr bikarnum þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum. Nú mætast liðin á ný í Eyjum. Matt Garner segir bikarinn hafa bjargað tímabilinu. 31. júlí 2014 06:00 Mest lesið Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Sjá meira
Verða vonandi tólfti leikmaður liðsins KR hefur hent ÍBV úr bikarnum þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum. Nú mætast liðin á ný í Eyjum. Matt Garner segir bikarinn hafa bjargað tímabilinu. 31. júlí 2014 06:00