Oddvitaáskorunin - Fyrst og fremst áhersla á fjölskylduna Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2014 13:36 Halldór ásamt ungum sjálfstæðismönnum.
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Halldór Halldórsson leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Halldór á að baki mikla og fjölbreytta reynslu en hann fór að heima aðeins 16 ára og hefur síðan þá starfað sem sjúkraflutningamaður, sjómaður, verið í björgunarsveit, starfað við vélavinnu og unnið í bókhaldi auk þess sem hann hefur rekið sitt eigið fyrirtæki, svo dæmi séu tekin. Eftir að hafa starfað sem bæjarstjóri Ísafjarðar frá 1998–2010 ákvað Halldór að skipta um vettvang því hann trúir því að það sé lýðræði að láta af hendi. Hann flutti því til Reykjavíkur og hóf nám í viðskiptafræði auk þess sem hann lauk námi MS námi í mannauðsstjórn. Á meðan á náminu stóð starfaði hann einnig sem formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga en hann tók við þeirri stöðu árið 2006. Líkt og starfsferill Halldórs sýnir fram á er hann maður framkvæmda sem vill takast á við áskoranir, enda er hann ófeiminn við að breyta til og taka u-beygjur. Áhugamál Halldórs eru útivist, fjallamennska og sérstaklega sjókajakróður og slík ferðalög um óbyggðir en hann lítur einnig á störf sín í sveitastjórn sem áhugamál sitt. Halldór er mikill fjölskyldumaður en hann er giftur Guðfinnu M. Hreiðarsdóttur, sagnfræðingi, og á fjögur börn. Halldór fór út í pólitík af áhuga á samfélaginu og þeirri vissu að hann gæti haft áhrif og náð fram breytingum til að bæta skilyrði okkar allra. Hann hefur fram að færa einlægan áhuga á sveitarstjórnarmálum, skýra hugmyndafræði og mikla reynslu. YFIRHEYRSLAN Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Hornstrandir þar sem Hornvíkin er djásnið. Ótrúlega fallegur staður Hundar eða kettir? Ég er meira fyrir hunda og á Shnauzer hund. En kisan hennar mömmu minnar heitinnar er líka á heimilinu og fær óþarflega mikla athygli að mati hundsins. Hver er stærsta stundin í lífinu? Það er ekki spurning að fæðing barnanna er stærsta einstaka stundin. Það jafnast ekkert á við það. Mér er sama þó það hljómi klisjukennt, þetta er staðreynd. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Suðrænir saltfiskréttir og indverskur matur er með því besta. Hvernig bíl ekur þú? Eldrauðum Skoda Octavia Besta minningin? Ég hverf í huganum til æskuáranna og dýrmætra samverustunda með foreldrum mínum. Bæði eru fallin frá og ég sakna þeirra daglega. Ég man hvað það var stórkostlegt á 10 ára afmælinu að fá myndavél í afmælisgjöf frá þeim. Það hefði einfaldað margt ef stafræna tæknin hefði verið komin á þeim tíma. Það tók fleiri daga að fá filmu úr framköllun og sjá hvort myndir hefðu heppnast eða ekki. Hefur þú verið tekinn af lögreglunni? Já, fyrir hraðakstur og verið í lögreglunni og tekið aðra fyrir hraðakstur. Hverju sérðu mest eftir? Það er ekki hægt að fara í gegnum lífið án mistaka, því miður. En þetta er persónuleg reynsla hvers og eins og ég vil halda minni út af fyrir mig. Draumaferðalagið? Það eru óhefðbundin ferðalög innanlands. Eins og að róa á kajak frá Reykjavík til Ísafjarðar. Svo langar mig til að ferðast um Afríku en þangað hef ég aldrei komið. Hefur þú migið í saltan sjó? Já ég er alinn upp við sjávarsíðuna og fór með afa mínum í grásleppunetin á vorin. Svo var ég á sjó tvær vertíðir og eitthvað í lausaróðrum með skóla. Svo ferðast ég mikið um á sjókajak. Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert? Með undarlegustu upplifunun er að vera hifður úr sjó og upp í þyrlu. Hefur þú viðurkennt mistök? Já, ég viðurkenni mistök hiklaust og vil læra af þeim. Hverju ertu stoltastur af? Ég er stoltur af mörgu sem tekist hefur að áorka í störfum mínum. Og ég er stoltur af börnunum mínum sem eru ólíkir einstaklingar en öll eru þau á fullu í því að láta drauma sína rætast. Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu samuel@365.is.
Kosningar 2014 fréttir Kosningar 2014 Höfuðborgarsvæðið Oddvitaáskorunin Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Oddvitaáskorunin - Viljum minna af klækjum og refskák Sigurður Björn Blöndal leiðir lista Bjartrar framtíðar í Reykjavík. 21. maí 2014 18:57 Oddvitaáskorunin - Stuðla að betra samfélagi Sóley Tómasdóttir leiðir lista Vinstri grænna í Reykjavík. 15. maí 2014 15:54 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Fleiri fréttir Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Sjá meira
Oddvitaáskorunin - Viljum minna af klækjum og refskák Sigurður Björn Blöndal leiðir lista Bjartrar framtíðar í Reykjavík. 21. maí 2014 18:57
Oddvitaáskorunin - Stuðla að betra samfélagi Sóley Tómasdóttir leiðir lista Vinstri grænna í Reykjavík. 15. maí 2014 15:54