Formúla 1

Lotus trúir að bíllinn henti í Mónakó

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Romain Grosjean á ráslínunni á Spáni.
Romain Grosjean á ráslínunni á Spáni. Vísir/Getty
Lotus liðið stefnir á enn eitt framfarastökkið í viðbót í Mónakó um helgina. Eftir að Romain Grosjean náði í fyrstu stig liðsins á tímabilinu í Barcelona. Liðið er bjartsýnt á enn betri árangur í Mónakó.

Grosjean endaði í áttunda sæti í Barcelona en hefði getað endað ofar. Skynjari á Renault vél hans bilaði og það hægði talsvert á Frakkanum.

Þrátt fyrir að skynjarinn hafi bilað gat Grosjean keppt við Ferrari, Force India og McLaren bílana. Nick Chester, tæknistjóri Lotus, trúir því að fleiri stig muni skila sér í hús í Mónakó.

„Já það held ég,“ sagði Chester þegar hann var spurður hvort bíllinn henti þröngum götum Mónakó.

„Mónakó er frekar einkennilegur staður - einstakur - þannig að það er alltaf hættulegt að gera ráð fyrir að bíllinn þinn sé góður þar. En ég held að hún (Mónakó brautin) muni henta E22 og okkur ætti að vegna þokkalega vel,“ sagði Chester að lokum.

Keppnin i Mónakó fer fram um næstu helgi. Henni fylgir jafnan mikill glamúr og gleði. Keppnin er ein sú elsta sem enn er á keppnisdagatalinu og brautin í miklu uppáhaldi hjá mörgum ökumönnum.


Tengdar fréttir

Lotus bíllinn fljótastur við lok æfinga á Spáni

Pastor Maldonado ökumaður Lotus var fljótastur á lokadegi æfinga á Spáni í fyrradag. Maldonado var tæpri sekúndu á undan næsta manni sem var Nico Rosberg á Mercedes. Þeir óku báðir 102 hringi um brautina.

Bílskúrinn: Hvað er að frétta frá Spáni?

Spænski kappaksturinn sem fram fór í gær var fyrir margt áhugaverður. Liðsfélagar glímdu og bílarnir rásuðu mikið um brautina. Mercedes mennirnir skiluðu fullu húsi stiga. Lewis Hamilton vann og Nico Rosberg varð annar.

Hamilton kom fyrstur í mark á Spáni

Eftir spennandi keppni hafði Lewis Hamilton betur gegn liðsfélaga sínum hjá Mercedes, Nico Rosberg sem reyndi hvað hann gat en allt kom fyrir ekki. Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×