Upphitun fyrir UFC Fight Night: Nogueira vs. Nelson Pétur Marinó Jónsson skrifar 10. apríl 2014 23:15 Big Nog og Roy Nelson Vísir/Getty
Föstudagskvöldið 11. apríl fer UFC: Nogueira vs. Nelson fram í Abu Dhabi þar sem Roy Nelson og Antonio “Big Nog” Nogueira etja kappi í aðalbardaga kvöldsins. Fjórir bardagar verða sýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst veislan kl 18.Roy Nelson (19-9-0) gegn Antonio “Big Nog” Nogueira (34-8-1) - þungavigt Þrátt fyrir að báðir bardagakappanir séu orðnir 37 ára gamlir er hér um þrælskemmtilegan bardaga að ræða.-Roy Nelson hefur aldrei litið út fyrir að vera atvinnuíþróttamaður en það hefur ekki aftrað honum í að komast í fremstu röð í MMA.-Eftir að hafa barist í hinum ýmsu bardagasamtökum komst hann í UFC í gegnum raunveruleikaþáttinn The Ultimate Fighter. Þar sigraði hann m.a. Youtube stjörnuna Kimbo Slice þar sem hann notaði yfirburðar glímugetu sína til að knýja fram sigur. Nelson komst alla leið í úrslit þáttarins þar sem hann rotaði Brendan Schaub og stóð uppi sem sigurvegari. Árangur Roy Nelson í UFC eru 6 sigrar og 5 töp en allir sigrar hans hafa komið eftir rothögg á meðan töpin hafa allt verið eftir dómaraákvarðanir. Hann er augljóslega með mikinn höggþunga en er einnig svart belti í brasilísku jiu-jitsu og hefur sigrað 5 bardaga eftir uppgjafartak. Nánar má lesa um afrek Roy Nelson hér.StyrkleikarMjög höggþungurGóður glímumaðurGóða höku en hann hefur aðeins einu sinni verið rotaðurVeikleikarFyrirsjáanlegurLélegt úthald - þreytist mjög þegar líður á bardagann Antonio Big Nog Nogueira (oftast kallaður bara Big Nog) er ein mesta goðsögnin í sögu MMA. Hann skapaði sér nafn í japönsku bardagakeppninni Pride þar sem hann virtist endalaust geta tekið við höggum en náði oftast að knýja fram sigur á endanum. Hann er með ótrúlegt hjarta og er frábær gólfglímumaður en hann hefur sigrað 21 bardaga eftir uppgjafartak. Hann hefur ekki náð sömu hæðum í UFC eins og í Pride enda kominn af léttasta skeiði. Hann varð þó þungavigtarmeistarinn í UFC en náði ekki að verja titilinn. Nánar má lesa um afrek Big Nog hér.StyrkleikarFrábær gólfglímumaðurMeð góða stunguGefst aldrei uppVeikleikarHægurHakan mun veikari en áðurÚtbrunninnGuida og Kawajiri horfast í augu eftir vigtunina í dag.Vísir/GettyClay Guida (30-14) gegn Tatsuya Kawajiri (33-7-2) - fjaðurvigt (66 kg) Þetta er bardagi tveggja glímumanna sem eru með afar svipaðan stíl. Báðir vilja draga bardagann í gólfið og halda honum þar svo þetta gæti orðið afar athyglisverður bardagi!Clay Guida var eitt sinn einn allra skemmtilegasti bardagamaðurinn í UFC. Eftir tvö töp í röð skipti hann yfir í mun íhaldssamari bardagastíl. Í dag einblínir hann mest á að taka andstæðinga sína niður og halda þeim þar án þess að reyna uppgjafartök. Guida barðist lengi vel í léttvigtinni en færði sig niður í fjaðurvigtina þar sem hann er nú. Guida trúir því að það besta eigi enn eftir að koma frá honum en hann æfir hjá Greg Jackson sem er einn virtasti þjálfarinn í MMA í dag.StyrkleikarGóðar fellurHreyfir sig mikið sem gerir andstæðingum erfitt fyrir að reikna hann útGott úthaldVeikleikarLítill kraftur í höggunum hansVirðist ekki reyna að klára bardaga sínaTatsuya Kawajiri var lengi vel einn af bestu léttvigtarmönnum heims en virtist vera kominn á endastöð eftir töp gegn Gilbert Melendez og Shinya Aoki. Síðan hann færði sig niður í fjaðurvigtina árið 2011 hefur hann sigrað 5 bardaga í röð. Hann fékk sinn fyrsta bardaga í UFC í janúar á þessu ári þar sem hann svæfði hinn efnilega Sean Soriano í 2. lotu.StyrkleikarGóðar fellurSetur mikla pressu á andstæðinginnVeikleikarÁ erfiðleikum með að halda fjarlægðinni með höggumLeikáætlun hans er fyrirsjáanlegJohn Howard (22-8) gegn Ryan LaFlare (10-0) - veltivigt (77 kg)John Howard barðist fyrst í UFC í janúar 2009 og sigraði fyrstu fjóra bardaga sína þar. Eftir 3 töp í röð gegn sterkum andstæðingum (Jake Ellenberger, Thiago Alves og Matt Brown) var hann látinn fara. Howard gekk vel utan UFC og sigraði 6 af 7 bardögum sínum þar. Þegar að andstæðingur Uriah Hall meiddist bauð UFC Howard að koma til baka með skömmum fyrirvara. Howard stóð sig virkilega vel og sigraði TUF keppandann og stimplaði sig svo enn frekar inn í UFC með sigri á Siyar Bahadurzada í desember.StyrkleikarHarður af sérJafnvígur á öllum vígstöðum bardagansHöggþungurVeikleikarLendir í vandræðum þegar hann nær ekki að yfirbuga andstæðinga sína með styrk sínumEinblínir bara á boxið og sparkar lítið sem getur orðið fyrirsjáanlegtRyan LaFlare hefur sigrað alla 10 bardaga sína og berst nú sinn 4. UFC bardaga á morgun. LaFlare hefur litið vel út í UFC og þá sérstaklega í bardaganum gegn Court McGee. LaFlare var ríkismeistari í glímu á menntaskólaárum sínum og er fjólublátt belti í brasilísku jiu-jitsu.StyrkleikarGóðar fellurGefst aldrei upp við að reyna að ná fellunni og andstæðingar hans fá engan tíma til að athafna sigVeikleikarLéleg vörn gegn höggumRamsey Nijem (8-4) gegn Beneil Dariush (7-0) - léttvigt (70 kg)Ramsey Nijem þekkja eflaust margir úr The Ultimate Fighter raunveruleikaþáttunum þar sem hann hafnaði í 2. sæti. Nijem er góður glímumaður en verður seint kallaður góður boxari. Hann er með 4 sigra og 3 töp í UFC.StyrkleikarGóður fellurGóður “scrambler”VeikleikarMjög opinn fyrir gagnárásum (sjá Myles Jury bardagann)Ónákvæmur boxariSlæm haka Þó báðir bardagamenn séu tiltölulega ungir þá er aðeins annar talinn efnilegur og það er Dariush. Beneil Dariusch er 24 ára ósigraður bardagamaður. Hann sigraði hinn reynslumikla Charlie Brennerman í janúar eftir “rear naked choke” í fyrstu lotu og leit mjög vel út þar. Hann er virkilega góður gólfgímumaður og hlaut svarta beltið sitt í brasilísku jiu-jitsu eftir aðeins 5 ár í íþróttinni.StyrkleikarFrábær gólfglímumaðurHraðurSkarpur bardagamaðurVeikleikarSættir sig við að vera á botninum sem lítur ekki vel út í augum dómaraVísir og MMA fréttir hafa tekið höndum saman í umfjöllun um MMA. Pétur Marinó er ritstjóri MMA frétta og birtir fréttir úr MMA heiminum á Vísi. Ekki gleyma að setja "like" við Facebook síðu þeirra hér.
MMA Tengdar fréttir Roy Nelson - rotarinn með stóru bumbuna Föstudaginn 11. apríl etja þeir Roy Nelson og Antonio "Big Nog" Nogueira kappi á UFC viðburði í Dubai. Bardaginn er aðalbardagi kvöldsins og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þegar hugsað er um hinn fullkomna íþróttamann er Roy Nelson sennilega síðastur til að koma upp í hugann. 3. apríl 2014 12:15 Bardagamaðurinn sem átti ekki að ganga framar Föstudaginn 11. apríl mætast þeir Antonio Rodrigo Nogueira og Roy Nelson í aðalbardaganum á UFC: Dubai viðburðinum. Bardaginn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin kl 18. 8. apríl 2014 22:45 Mest lesið Úkraína - Ísland 2-0 | Krömdu aftur hjörtu Íslendinga Fótbolti Heimir með Íra í HM-umspil eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Heimir fékk tilboð: „Pabbi vill ekki vera þar sem stuðningsmenn vilja hann ekki“ Fótbolti Lárus gafst upp og hætti að horfa: „Þeir hentu þeim leik“ Fótbolti „Það verða breytingar“ Fótbolti Einkunnir Íslands: Sverrir bestur í grátlegu tapi Sport Samningi Caulkers við Stjörnuna rift Íslenski boltinn Óvænt lið Íslands: Hörður, Brynjólfur og Jón Dagur inn Fótbolti „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Íslenski boltinn Malinovskyi vonar að Albert eigi ekki sinn besta dag Fótbolti Fleiri fréttir Mörk og fagnaðarlæti Íra í Búdapest Donni og félagar höfðu ekki erindi sem erfiði Jökull Andrésson í FH „Þetta er svekkjandi og mun svíða í langan tíma“ Reynslumiklar Valskonur kveðja „Þetta er allt annað dæmi“ „Vilt einhvern veginn ekki gera neitt“ Guðlaugur Victor: Æðri máttarvöld sem segja að við séum ekki tilbúnir „Skrýtið að spila þennan leik“ „Úkraína er ekki betra fótboltalið en við í dag“ Einkunnir Íslands: Sverrir bestur í grátlegu tapi „Hrikalega stoltur af stelpunum“ England og Frakkland gulltryggðu farseðilinn á HM Valur - Blomberg-Lippe 22-22 | Valur kveður Evrópudeildina með jafntefli Tryggvi fyllti í tölfræðiskýrsluna en Real vann leikinn Arnór hafði betur í Íslendingaslagnum Lárus gafst upp og hætti að horfa: „Þeir hentu þeim leik“ „Óhræddir við að vinna þennan leik“ Arnar: Ég laug aðeins að strákunum í sumar Óvænt lið Íslands: Hörður, Brynjólfur og Jón Dagur inn Fanneyju skipt út til heiðurs, Elísa lagði upp og Rosengård reddaði sér Hafrún Rakel hetja Bröndby Samningi Caulkers við Stjörnuna rift Erfið byrjun hjá Cecilíu og Karólínu Leiðin á HM: Arnar fer ekki að ljúga núna Heimir með Íra í HM-umspil eftir ótrúlega dramatík Haaland þakklátur mömmu sinni Úkraína - Ísland 2-0 | Krömdu aftur hjörtu Íslendinga Malinovskyi vonar að Albert eigi ekki sinn besta dag Ágúst laus úr frystikistu í Danmörku Sjá meira
Roy Nelson - rotarinn með stóru bumbuna Föstudaginn 11. apríl etja þeir Roy Nelson og Antonio "Big Nog" Nogueira kappi á UFC viðburði í Dubai. Bardaginn er aðalbardagi kvöldsins og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þegar hugsað er um hinn fullkomna íþróttamann er Roy Nelson sennilega síðastur til að koma upp í hugann. 3. apríl 2014 12:15
Bardagamaðurinn sem átti ekki að ganga framar Föstudaginn 11. apríl mætast þeir Antonio Rodrigo Nogueira og Roy Nelson í aðalbardaganum á UFC: Dubai viðburðinum. Bardaginn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin kl 18. 8. apríl 2014 22:45