HK spilar heimaleiki sína Kórnum í sumar 7. febrúar 2014 10:04 HK spilar alla ellefu heimaleiki sína innandyra. Vísir/Vilhelm
Knattspyrnulið HK, sem leikur í 1. deild á komandi sumri, mun spila alla sína heimaleiki innandyra í knattspyrnuhöllinni Kórnum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins en hingað til hefur HK leikið á Kópavogsvelli og í Fagralundi. „HK mun brjóta blað í íslenskri knattspyrnusögu á komandi keppnistímabili því meistaraflokkur karla verður fyrsta liðið í efri deildum til að vera með knattspyrnuhöll sem fastan heimavöll sinn á Íslandsmóti,“ segir á HK.is. „Við lítum ekki lengur á Kópavogsvöll sem okkar heimavöll, enda fluttum við nær alfarið af honum um mitt síðasta sumar og spiluðum seinni hluta tímabilsins í Fagralundi. Auðvitað myndum við kjósa að spila áfram heimaleikina í Fagralundi en því miður er hvorki hægt að spila þar né á grasvellinum við Kórinn í 1. deild vegna skorts á aðstöðu fyrir áhorfendur,“ segir ennfremur. HK, sem komst upp úr 2. deild í sumar, hefur spilað einn leik í Kórnum en það var 1. deildar leikur gegn ÍR 2009. Kórinn rúmar 1.452 áhorfendur í sæti og er húsið löglegt fyrir landsleiki. A-landslið Íslands hefur spilað þrjá vináttuleiki við Færyja í knattspyrnuhúsinu.
Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira