Börnum haldið inni svo vikum skipti vegna hálku Stefán Árni Pálsson skrifar 20. janúar 2014 10:52 Börn hafa ekki farið út í leikskólagarð svo vikum skiptir. visir/haraldur bjarnason
Mikil hálka hefur verið í Reykjavík að undanförnu og hefur það haft áhrif á íbúa Reykjavíkurborgar. Dæmi eru um að börn á leikskólum hafi ekki farið út í leikskólagarðinn svo vikum skiptir vegna hálku og hefur borið á töluverðari óánægju hjá foreldrum. Á leikskólanum Laugarsól við Leirulæk í Reykjavík hefur ekki verið hægt að hleypa börnum út í garð í einhvern tíma vegna aðstæðna. „Það hefur verið svo mikil hálka að við hreinlega treystum okkur ekki að hleypa börnunum út í garð,“ segir Helga Alexandersdóttir, leikskólastjóri á Laugarsól, í samtali við Vísi. „Það hefur verið klaki yfir öllum garðinum. Starfsfólk Reykjavíkurborgar hefur reynt ítrekað að sanda garðinn en sandurinn lekur alltaf af klakanum og það hefur ekki borið neinn árangur.“ „Svona er staðan hér hjá okkur og ég veit til þess að þetta sé einnig svona á öðrum leikskólum. Það hafa ekki komið upp nein slys á börnum hér hjá okkur en þetta er bara erfitt viðfangs. Í raun og veru höfum við gert allt það sem hægt er að gera í þessu máli. Ég vona að þetta sé að lagast en það hefur gengið töluvert á klakann undanfarna daga.“ „Foreldrar eru skiljanlega mjög óhressir með þetta en það er bara svo erfitt að ráða við þetta.“
Veður Mest lesið Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Erlent Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Innlent Fleiri fréttir Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Sjá meira