Alltaf verið umdeildur 28. ágúst 2013 12:00 Microsoft undir stjórn Steves Ballmer þótti ekki hafa farnast vel í slagnum um nýjungar í tæknigeiranum, sérstaklega hvað varðar snjallsíma og spjaldtölvur. Þrátt fyrir að nýjustu afurðir fyrirtækisins hafi fengið ágætis viðtökur hefur þeim ekki tekist að ógna Apple og Google í þeim efnum. Nordicphotos/AFP
Tímamót urðu hjá tæknirisanum Microsoft á dögunum þegar forstjórinn Steve Ballmer tilkynnti að hann hygðist segja upp starfi sínu. Hópur undir forystu stjórnarformannsins Bill Gates hefur hafið leit ð eftirmanni Ballmers, sem stefnir að því að setjast í helgan stein innan árs „Það er aldrei fullkominn tímapunktur fyrir svona breytingar en mér finnst þetta vera rétti tíminn,“ sagði Ballmer í yfirlýsingu. Ballmer hefur sætt töluverðri gagnrýni síðustu ár þar sem honum er kennt um að Microsoft hafi setið eftir í þróuninni, meðal annars hvað varðar snjallsíma og spjaldtölvur. Margir leiða meðal annars líkum að því að hluthafar í Microsoft hafi haft sitthvað að að segja um að Ballmer stígi til hliðar. Strax eftir að hann tilkynnti um áform sín hækkaði hlutabréfaverð í Microsoft um nær tíu prósent. Ballmer var ráðinn til Microsoft árið 1980 en hann hafði þá þekkt Gates um árabil. Ballmer tók svo við stjórnartaumunum þegar Gates steig til hliðar í byrjun árs 2000. Síðan þá hefur Ballmer verið umdeildur í starfi. Microsoft hefur í gegnum árin skilað miklum tekjum af forritum eins og Windows og Office-pakkanum og á síðustu árum hefur þeim orðið ágengt í fyrirtækjaþjónustu í gegnum skýið, en gengi hlutabréfa í fyrirtækinu hefur fallið verulega. Gengi Microsoft kemur sérstaklega illa út í samanburði við mörg önnur stærri tæknifyrirtæki, sérstaklega Google og Apple. Í hinum gríðarmikilvæga geira sem snjallsímar og spjaldtölvur eru hefur Microsoft verið að elta forystusauði frekar en að leiða hjörðina. Annað atriði sem dregið hefur verið upp Ballmer til hnjóðs er mannauðsstefnan sem rekin er undir hans stjórn, svokölluð stack ranking. Það felur í sér að í hverri einingu innan fyrirtækisins er starfsfólk flokkað eftir getu. Á grundvelli þeirrar flokkunar voru launa- og stöðuhækkanir, sem olli mikilli misklíð meðal starfsmanna og varð til þess að hæfustu starfsmennirnir veigruðu sér við að vinna með öðru hæfileikafólki vegna þess að það gæti skaðað hagsmuni þeirra. Fróðlegt verður að sjá hverju fram vindur hjá Microsoft, sem er þrátt fyrir allt eitt stærsta og mikilvægasta fyrirtækið í tæknigeiranum. Í Financial Times er haft eftir manni sem þekkir vel til að sennilega sé best að sækja nýjan forvígismann út fyrir raðir Microsoft; einhvern með skýra framtíðarsýn, frekar en innanbúðarmann sem mun stýra risanum á fallandi fæti.
Mest lesið Trump-tollarnir hafa tekið gildi Viðskipti innlent Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Viðskipti innlent Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Viðskipti innlent Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Viðskipti innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Fleiri fréttir Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira