Með sterkustu taugarnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. júlí 2013 06:00 Sunna og Birgir Leifur með bikarana. fréttablaðið/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson vann sinn fimma Íslandsmeistaratitil í höggleik er hann hafði betur í taugastríðinu gegn heimamanninum Haraldi Franklín Magnús, meistara síðasta árs. Í kvennaflokki varð hin átján ára Sunna Víðisdóttir meistari eftir ótrúlega spennandi lokasprett. Heimamaðurinn Haraldur Franklín hafði verið með forystu en tveggja högga forysta hans fyrir lokadaginn hvarf strax á þriðju holu. Birgir Leifur komst svo fram úr á níundu en mestu munaði um að Haraldur Franklín lentu í miklu basli á 16. holu, þar sem hann tapaði þremur höggum. Sigur Birgis Leifs var aldrei í vafa eftir það. „Biggi notaði mig sem héra. Ég leiddi allt mótið og hann tók svo fram úr í restina,“ sagði Haraldur Franklín, sem tók ósigrinum vel þrátt fyrir að vera tapsár að eigin sögn. „Ég sló í tré á 16. og lenti við gamalt torfufar. Ég þurfti að leggja upp þaðan líka og gat því ekki slegið inn á grín,“ sagði hann og hét því að hann myndi vinna Birgi Leif á næsta Íslandsmóti.Komin yfir settan dag Birgir Leifur spilaði jafnt og gott golf í gær. Hann tapaði bara einu höggi og var á samtals þremur undir – tíu undir í það heila. „Mestu skiptir að halda boltanum í leik og vera þolinmóður. Ætli ég hafi ekki unnið þolinmæðisvinnuna vel á mótinu,“ sagði hann eftir sigurinn í gær. Birgir Leifur og Elísabet, eiginkona hans, eiga von á þriðja barni sínu hvað af hverju. Elísabet er komin yfir settan dag og Birgir Leifur var efins um að taka yfir höfuð þátt. „Hún er svo yndisleg að hún rak mig alltaf áfram. Það var hún sem hvatti mig til að taka þátt. Ég gæti þá bara komið á fæðingardeildina ef allt færi af stað. Við tókum bara einn dag í einu,“ segir hann.Dramatík hjá konunum Það voru miklar sviptingar í kvennaflokki allan daginn. Valdís Þóra Jónsdóttir, Íslandsmeistari síðasta árs, og Guðrún Brá Björgvinsdóttir höfðu skipst á að vera í forystu en um miðjan lokahringinn fór Sunna að blanda sér í baráttuna. Allar voru saman í lokahollinu. En Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði einnig frábærlega á lokasprettinum og náði að blanda sér í baráttuna með góðri frammistöðu. 18. holan reyndist mikill örlagavaldur. Valdís Þóra var í kjörstöðu en lenti í miklum vandræðum og fékk þrefaldan skolla. Sunna púttaði fyrir sigrinum en slík var spennan að hún gerði sér ekki almennilega grein fyrir því. En púttið geigaði og á endanum urðu hún, Ólafía og Guðrún efstar og jafnar. Ólafía tapaði höggi á fyrsta holu umspilsins af þremur og náði ekki að brúa bilið aftur. Sunna og Guðrún voru hnífjafnar og þurfti því bráðabana til að knýja fram úrslit. Þar hafði Sunna betur. Hún sagði að það hefði gengið vel að róa taugarnar og þakkaði mömmu sinni fyrir. „Hún var á pokanum og við reyndum bara að spjalla um eitthvað allt annað en golf. En ég er himinlifandi með sigurinn, sérstaklega eftir að hafa byrjað illa í mótinu. Það er frábært að hafa náð að koma til baka,“ segir Sunna, sem stóð uppi sem sigurvegari þrátt fyrir að hafa spilað á tíu höggum yfir pari fyrsta keppnisdaginn.
Golf Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti „Mér líður frábærlega“ Enski boltinn „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Fótbolti Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Enski boltinn Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Fótbolti Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Fótbolti Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Guðrún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið Dagbjartur áfram í frábærum gír í titilvörninni „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Elsa Maren með sex fugla á síðustu sjö holunum Gæti skákað föður sínum: „Þetta verður spennandi“ Á heimavelli og freista þess að ná montrétti fjölskyldunnar Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Tíu fyrrum Íslandsmeistarar keppa á Íslandsmótinu í golfi í ár Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Gagnrýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn Danir og Norðmenn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Sjá meira