Níu af sautján evrulöndum eiga í kreppu 18. maí 2013 06:00 Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og François Hollande, forseti Frakklands, leggja á ráðin. Nordicphotos/AFP
Þýskaland og Frakkland, stærstu hagkerfi evrusvæðisins, viðurkenna að samstarf þeirra sé lykillinn að því að ráða fram úr erfiðri stöðu evrulandanna. Ráðamenn eru enn ósammála um forgangsröðun verkefna. Forseti Frakklands, François Hollande, vill að öll sautján ríki evrusvæðisins samþætti skuldir sínar og vill leyfa hagkerfinu að blómstra, án þess að ráðist sé í niðurgreiðslu skulda af hálfu stjórnvalda, sem myndi skila sér í hærri sköttum, skerðingu á þjónustu og færri tækifæri á atvinnumarkaði. Angela Merkel er ekki sammála forseta Frakklands um að samþætta skuldir þjóðanna sautján. Hún vill að ríkisstjórnir ráðist í niðurfellingu skulda ríkissjóða áður en lengra er haldið. Nýjustu tölur sýna að hagkerfi evrusvæðisins hefur dregist stöðugt saman síðasta eitt og hálft ár, og níu af sautján Evrulöndum eru í kreppu, þar af er eitt landanna Frakkland. Hollande, sem er sósíalisti, vill stefna að því til langs tíma að búa til eina allsherjar ríkisstjórn yfir öllu evrusvæðinu. Merkel óttast að slík áform gætu orðið til þess að Þýskaland endi á að borga brúsann fyrir lönd sem standa ekki jafn vel að vígi fjárhagslega.- ósk
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira