13 spora kerfi fyrir varúlfa Friðrika Benónýsdóttir skrifar 7. maí 2013 17:00 Úlfshjarta eftir Stefán Mána.
Bækur. Úlfshjarta. Stefán Máni. JPV-útgáfa. Stefán Máni rær á ný mið í nýjustu bók sinni Úlfshjarta. Bókin er flokkuð sem „young-adult“ bók en einfaldara er nú að flokka hana sem unglingabók, enda markhópurinn 12 til 15 ára unglingar, ef mér skjátlast ekki. Í anda þeirra bóka sem vinsælastar hafa verið fyrir þennan aldurshóp er Úlfshjarta með yfirnáttúrulegu ívafi, aðalsöguhetjan Alexander reynist vera varúlfur og fjallar sagan um þau átök sem því fylgja og leiðina til bata með aðstoð óvirkra varúlfa. Stefnuskrá óvirkra varúlfa er sótt þráðbeint í 12 spora kerfi AA-samtakanna að öðru leyti en því að sporin eru þrettán í tilfelli varúlfanna og erfðavenjurnar sömuleiðis. Freistandi er því að lesa söguna sem varnaðarorð til unglinganna um að varast áfengi og eiturlyf sem breyta karakternum og gera fólk óábyrgt gerða sinna. Verst bara að unglingarnir fatta þau skilaboð sennilega ekki. Þótt bókin sé með þessum formerkjum er hér árgangs Stefán Máni á ferð: átök persóna við sjálfar sig og þá sem standa þeim næst, átök milli góðs og ills alias undirheimalýðs og þeirra sem feta þrönga stíginn, yfirnáttúrulegir kraftar, glæpir og syndagjöld. Auk Alexanders eru aðalpersónur bókarinnar stelpan sem hann er skotinn í, Védís, vondi varúlfurinn Rúnar sem þó á sér málsbætur, góði óvirki varúlfurinn Sæmundur, sem leiðbeinir Alexander um leiðina út úr varúlfamennskunni, og drulludelinn Eddi feiti sem virðist vera rotinn frá grunni. Allar þessar persónur þekkjum við úr fyrri bókum Stefáns Mána nema unglingana tvo en þó má með góðum vilja lesa Alexander sem yngri útgáfu af Herði lögreglumanni sem við þekkjum úr nýjustu glæpasögum SM. Allar eru þær vel dregnar og sannfærandi þótt lesandi eigi dálítið erfitt með að kyngja því að Alexander sé nítján ára, eins barnslegur og óreyndur og hann er. Védís er hins vegar sterkasta kvenpersóna sem SM hefur skapað og óskandi að hann skrifaði fleiri bækur með hana í forgrunni. Sagan er vel sögð og mátulega spennandi, ofbeldi og kynlíf í hæfilegum skömmtum og hin aldagamla barátta þeirra sem eru á skjön við samfélagið skemmtilega sett fram. Ofan í kaupið er hér heilmikill fróðleikur um goðsöguna um varúlfa í gegnum aldirnar þótt atriðið frá Noregi á þrettándu öld hefði gjarnan mátt missa sig. Bókin er prýðilega stíluð og á köflum er textinn með því besta sem Stefán Máni hefur skrifað. Það er ekkert slegið af kröfunum þótt ætlaður lesendahópur sé yngri en sá sem hann hefur áður skrifað fyrir. Niðurstaða: Hressileg og vel skrifuð unglingasaga með sannferðugum persónum og skemmtilegri útfærslu á átökunum við fíkniefnaneyslu.
Gagnrýni Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira