Dimmari og kraftmeiri Bloodgroup Trausti Júlíusson skrifar 5. mars 2013 12:00
Tónlist. Bloodgroup. Tracing Echoes. Kölski. Ég man enn vel eftir því þegar ég sá hljómsveitina Bloodgroup spila í fyrsta skipi. Það var á Iceland Airwaves 2006 á skemmtistaðnum Pravda í Austurstræti. Þá vakti hún athygli fyrir skemmtilega og dansvæna tónlist og einkar líflega sviðsframkomu. Maður skynjaði strax einhvern kraft sem sagði manni að þessi hljómsveit yrði ekki ein af þeim sem hverfa af sjónarsviðinu skömmu eftir að þær skjóta upp kollinum. Bloodgroup hefur þróast mjög mikið síðan. Tónlistin er orðin hægari, dýpri og dimmari og sveitin hefur þróað hljóðheiminn mikið. En þessi kraftur sem einkenndi hana í byrjun er enn til staðar. Tracing Echoes er þriðja plata Bloodgroup. Önnur platan þeirra, Dry Land, kom út árið 2009. Hún fékk alþjóðlega dreifingu á vegum Sugarcane-plötufyrirtækisins, sem m.a. gefur út tónlist David Lynch, Hot Chip og Hercules & Love Affair. Nýja platan er líka gefin út af Sugarcane á alþjóðavísu en Kölski sér um útgáfuna hérlendis. Tracing Echoes er stórt skref tónlistarlega frá Dry Land. Hljómurinn er miklu dýpri og dimmari og er eiginlega alveg magnaður. Hann minnir svolítið á tónlist níunda áratugarins, ekki síst Depeche Mode, en á sama tíma er hann öðruvísi. Virkar kraftmikill og ferskur á árinu 2013. Þykkir og rifnir syntahljómar eru áberandi, í bland við fínlegri hljóma. Það var hljómsveitin sjálf sem sá um upptökustjórn, en Ólafur Arnalds (sem er með Janusi í teknódúettinum Kiosmos) útsetti strengina og samdi eitt besta lag plötunnar, Disquiet, með hljómsveitarmeðlimum. Platan hefur sterkan heildarsvip en lögin eru samt ólík og ýmis tilbrigði í gangi varðandi takta og yfirbragð. Báðir söngvararnir, Janus og Sunna, koma mjög vel út á plötunni. Tracing Echoes er mjög flott plata. Hún sýnir að Bloodgroup er hljómsveit sem hefur mikinn metnað og sættir sig ekki við stöðnun. Tónlistin er ekki eins dansvæn og hún var en í staðinn er hún dýpri og áhrifameiri. Ég mæli með því að spila Tracing Echoes á miklum styrk í góðum græjum. Þannig virkar hún best. Niðurstaða: Þriðja plata Bloodgroup sýnir að hljómsveitin þróast og styrkist með hverri plötu.Tracing Echoes hefur sterkan heildarsvip en lögin eru samt ólík og ýmis tilbrigði í gangi varðandi takta og yfirbragð.
Gagnrýni Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira